Vodafone

Í fyrsta sinn 10x meiri hraði á nettengingu til heimila

 

Í gær kynnti Míla nýja byltingakennda þjónustu á ljósleiðaratengingum sínum sem að býður viðskiptavinum allt að 10x meiri hraða á ljósleiðaratengingu. Í samstarfi við Mílu mun Vodafone geta boðið viðskiptavinum sínum að uppfæra heimili sitt á ljósleiðara Mílu í allt að 10 gígabita á sekúndu á völdum svæðum á höfuðborgarsvæðinu frá og með 1. október 2023 og þann 1. apríl 2024 eiga öll heimili, sem eru tengd á ljósleiðarakerfi Mílu, á höfuðborgarsvæðinu að hafa aðgengi að 10 gígabita tengingu. Innleiðing á landsbyggðinni mun svo verða í framhaldinu. Innleiðingin á nýju tækninni krefst þess að skipta þarf um búnað á báðum endum ljósleiðarans og mun Vodafone leiðbeina viðskiptavinum sínum með hvaða netbúnaður hentar best.

Hér geta viðskiptavinir Vodafone skráð sig.

„Þetta eru spennandi fréttir fyrir okkar viðskiptavini þar sem að notkun á nettengingu heimila er sífellt að aukast með aukinni heimavinnu, streymi á sjónvarpsþjónustum, leikjaspilun og ýmiskonar flutningi gagna í rauntíma og fjölgunar á tengdum tækjum. Nettenging með 10 gígabita á sekúndu í báðar áttir er tíföldun á þeim hraða sem að þekkist í dag og því spennandi lausn fyrir kröfuharða netnotendur. Vodafone hvetur viðskiptavini til að hafa samband í gegnum heimasíðu Vodafone ef þeir vilja kynna sér betur þessa nýju þjónustu og skoða hvort þeirra heimili geti fengið hraðari nettengingu,“ segir Sesselía Birgisdóttir framkvæmdastjóri hjá Vodafone.

Það er einfalt að koma yfir til Vodafone

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.