Skýjatengingar
Við beintengjum netkerfi fyrirtækja við skýjaþjónustu hvar sem er í heiminum
Traustara samband við þjónustur
Mikil aukning hefur orðið í notkun á skýjaþjónustum síðustu árin. Þar til fyrir stuttu fór öll umferð í slíkum samskiptum í gegnum internetið. Að nota internetið í þessi samskipti hefur sína ókosti. Álag á netinu og DDoS árásir geta valdið truflunum í rekstri. Með því að færa slík samskipti yfir í skýjatengingu, sem er í raun lokuð víðnetstenging (WAN), fá fyrirtæki betri vörn fyrir slíkum truflunum. Netsérfræðingar okkar eru til þjónustu reiðubúnir hafir þú spurningar varðandi þessa þjónustu.
Víðnetstengingar milli starfsstöðva víða um heim
Sé fyrirtækið með rekstur hér heima og erlendis er Vodafone með lausn sem tengist skýjaþjónustu beint í gagnaver. Lausnin tryggir bandvídd og gefur möguleika á að forgangsraða gögnum. Staðarnet starfstöðvanna þannig beintengst gagnaverinu yfir lokað víðnet sem eykur öryggi og gæði þjónustunnar til muna.
Öflug og skalanlegt umhverfi
Samstarf við Equinix
Vodafone hefur gert samkomulag við Equinix, einn stærsta gagnaversaðila í heimi, um aðgang að skýjaumhverfi og umfangsmiklu alþjóðlegu víðneti þess. Með Equinix skýjaumhverfinu getur Vodafone á Íslandi boðið fyrirtækjum öflugt og skalanlegt umhverfi hjá yfir 2500 þjónustuaðilum skýjaþjónustu í um 180 gagnaverum í öllum heimsálfum. Á meðal viðskiptavina Equinix eru nokkrir af stærstu aðilum í skýjaþjónustu í heiminum, m.a. Azure/Microsoft, AWS, SAP, Oracle og Salesforce.
Nánar um skýjatengingar
Skýjatengingar
Um er að ræða lokaðar IP-MPLS/Ethernet víðnets- eða einkanetstengingar (óháðar internetinu) þar sem viðkomandi starfsstöð fyrirtækis er beintengd miðjubúnaði í staðlaðri alþjóðlegri skýjaþjónustu.
Lægri og fyrirsjáanlegri svartími
Með innleiðingu á beinni skýjatengingu getur svartími orðið að jafnaði lægri og fyrirsjáanlegri en ella sem leiðir til áreiðanlegri upplýsingaþjónustu og þar með betri upplifun notanda.
Netlegur aðskilnaður
Netlegur aðskilnaður er á milli viðskiptavina sem eykur upplýsingaöryggi. Mögulegt að framkvæma netlegan aðskilnað á Layer II með VLAN/VRF tækni.
Mínar síður
Mögulegt er að panta, stækka og minnka bandvídd til tiltekinna gagnavera á mínum síðum. Eins er hægt að bæta við VLAN/VRF og samtengja við staðlaðar skýjaþjónustur eins og Azure, AWS, Salesforce, Oracle og fjölda annarra.
Aðgangur að uppitíma og álagsmælingum
Mögulegt er á að fá aðgang að neteftirlits- og álagsmælingakerfi sem eru aðgengileg í gegnum mínar síður.
Skýjavæðing á fyrirtækinu þínu
Skýjatenging frá Vodafone einfaldar nethögun til muna. Í stað vélbúnaðar eru netþjónar, beinar og eldveggir færðir upp í skýið. Eftir stendur mun meiri skalanleiki, hraðari uppfærslur, betri stjórn á netkerfunum og þar með meira öryggi.
Þjónustustigssamningar (SLA)
Möguleiki að kaupa þjónustustigssamninga (SLAs) með eiginleikum eins og að hafa beinan sólarhringsaðgang (24x7x365) að fyrirtækjaþjónustu Vodafone, forgang í bilanatilvikum, að sambönd séu vöktuð af fyrirtækjaþjónustu Vodafone ofl.
Samþætting við Global MPLS lausnir okkar
Mögulegt er að samþætta skýjalausnir við alþjóðlegu víðnetslausnirnar sem við bjóðum (e. Global MPLS) en þær eru hugsaðar til að tengja saman starfsstöðvar fyrirtækja víða um heim.
Það er einfalt að koma yfir
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528