Voda góð netheilræði
Vodafone
Allt það sem við óskum okkur í ár eru Jólagestir Björgvins, metnaðarfyllstu og skemmtilegustu jólatónleikar landsins. Síðustu 14 ár hefur Björgvin Halldórsson fært okkur jólin með stæl og boðið til sín skærustu söngstjörnum landsins til að töfra fram sannkallaða jólastemningu.
Tónleikarnir í ár fara fram laugardaginn 18. desember í Laugardalshöllinni og hefur Björgvin að vanda handvalið landslið söngvara, besta bandið, strengi, kóra, dansara og óvæntar uppákomur. Öll umgjörðin verður eins og áður að sjálfsögðu á heimsmælikvarða. Tónleikanir hefjast kl. 21:00 og er miðaverðið 5.990 kr.
Ásamt þeim koma fram Stórsveit Jólagesta undir stjórn Þóris Baldurssonar, strengjasveit undir stjórn Geirþrúðar Ásu Guðjónsdóttur, Reykjavík Gospel Company undir stjórn Óskars Einarssonar, Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarssonar, Barnakór Kársnesskóla undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur og dansarar úr Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar.
Einnig koma fram sigurvegarar í Jólastjörnunni 2021 og Jólalagakeppni Rásar 2. Þættirnir Leitin að Jólastjörnunni verða sýndir í Sjónvarpi Símans en þar geturðu fylgst með upprennandi söngstjörnum Íslands keppa um að verða Jólastjarna ársins.
Get ég spólað til baka eða pásað útsendinguna í myndlykli Vodafone?
Já, hægt er að spóla til baka og pása á meðan útsendingu stendur.
Hvar get ég fengið tæknilega aðstoð sem varðar myndlykil Vodafone?
Þú getur haft samband við þjónustuver Vodafone hér.
Verða tónleikarnir aðgengilegir í tímavél í myndlykil Vodafone?
Já, þeir verða aðgengilegir í 48 klst eftir að tónleikum lýkur 18. desember í gegnum tímavél Vodafone í myndlykli. Eftir það verður ekki hægt að horfa á tónleikana.
Verða tónleikarnir aðgengilegir í tímavél í Stöð 2 appinu?
Nei, tónleikarnir verða ekki aðgengilegir í gegnum tímaflakk í Stöð 2 appinu.
Get ég notað Stöð 2 appið?
Já, hægt verður að horfa á tónleikana í gegnum appið með því að kaupa miða á sjonvarp.stod2.is. Rásin „Jólagestir Bjögvins“ mun opnast á tónleikadag í Stöð 2 appinu. Sjá nánari leiðbeiningar ofar í þessari frétt.
Get ég keypt miða í gegn um myndlykilinn minn?
Já, viðburðurinn ætti að birtast í viðmóti í myndlykli. Sjá nánari leiðbeiningar um kaup á viðburði með myndlykli ofar í þessari frétt.
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.