Voda góð netheilræði
Vodafone
Undanfarin ár hefur Vodafone hefur tekið höndum saman með UN Women gegn kynbundnu ofbeldi og í ár er engin breyting á því.
Við snúum athygli okkar að stöðu kvenna og stúlkna í Mið-Afríkulýðveldi þar sem þær eru sérstaklega berskjaldaðar fyrir kynbundnu ofbeldi. Á hverri klukkustund er kona eða stúlka þar í landi beitt kynferðisofbeldi. Talað er um Mið-Afríkulýðveldið sem gleymda ríkið þar sem staða íbúa þjóðarinnar er sérstaklega slæm. UN Women gleymir hins vegar ekki og er á staðnum.
Með því að kaupa FO bolinn veitir þú „gleymdu konunum“í Mið-Afríkulýðveldinu von og neyðaraðstoð.
Tryggðu þér eintak á unwomen.is og í verslunum Vodafone. Takmarkað upplag!
ÞÚ getur haft áhrif og tekið afstöðu. FO bolurinn 2021 er meira en bara bolur. Hann er tákn um að taka afstöðu gegn kynbundnu ofbeldi – alltaf allstaðar. FO bolurinn 2021 er hvítur á lit, í „oversized“ sniði úr mjúkri bómull. Aftan á er ljósmynd eftir Önnu Maggý þar sem merking FO er skilgreind:
FO /eff, o/ „Skýr og afgerandi afstaða gegn kynbundnu ofbeldi – alltaf allsstaðar.“
FO bolurinn kostar 9.900 krónur og fæst á unwomen.is og í verslunum Vodafone í takmörkuðu upplagi.
FO bolurinn fæst í stærðum: S M L XL 2XL 3XL.
Vodafone & UN Women, saman gegn kynbundnu ofbeldi.
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.