Vörunr. 44108
Hraði. Kraftur. Nýstárlegur
Fáguð hönnun og kraftmikil myndavél gerir Galaxy A54 5G frábæran síma fyrir næstum alla, með fallegri gler bakhlið og möttum ál ramma, kemur í fjórum fallegum litum.
Skjár og rammi
Elskaðu það sem þú sérð, Galaxy A54 5G skartar 1000 nita björtum 6,4“ FHD+ Infinity-O skjá sem færir þér góð áhorfsskilyrði jafnvel úti í sólinni, allar hreyfingar á skjánum verða silki mjúkar með 120Hz endurnýjunartíðni.
Galaxy A54 5G er IP67 ryk- og rakavarinn sem gerir honum kleift að fara á 1 metra dýpi í allt að 30 mínútur í ferskvatni, auk þess er síminn með sterku gleri Gorilla Glass 5.
Örgjörvi
Skaraðu fram úr með kraftmiklum átta kjarna örgjörvanum í Galaxy A54 5G, tilbúinn fyrir nýjustu kynslóð farsímanets 5G sem mun veita þér meiri hraða og stöðuleika við að vafra á netinu.
Myndavél
Galaxy A54 5G skartar 50MP háskerpu OIS myndavél með sjálfvirkum fókus og tekur skruðningslaus myndbönd, með næturmyndatöku getur þú náð ótrúlegum myndum og fangað hin minnstu smáatriði með macro myndavélinni. Með ultra wide myndavélinni geturðu fangað meira og náð betiri fókus á aðalmyndaefnið.
Sjálfu myndavél
Sjálfu myndavélin setur þig í fyrsta sæti með breytilegum bakgrunni og svo kölluðu Fun Mode sem bætir við skemmtilegum filterum á myndirnar.
Rafhlaða
Stór 5000 mAh rafhlaða leyfir þér að gera miera, venjuleg notkun ætti að færa þér tveggja daga endingu og með 25W hraðhleðslukubb nærðu mikilli hleðslu á stuttum tíma.
Snjallir aukahlutir:
Galaxy Buds2 virka vel með Galaxy A54 5G, virk hljóðeinangrun gefur þér einstaklega góð hljóðgæði og útilokar meira að segja mýkri hljóð eins og vind.
Samsung A54 5G Clear Cover, einfalt hulstur sem ver símann þinn fyrir höggi og rispum.
Galaxy A54 5G PanzerGlass ver skjá símans fyrir höggi og rispum.
Athugið að hleðslukubbur fylgir ekki með símanum.
Ummál og þyngd
Hæð: 158,2 mm
Vídd: 76,7 mm
Þyngd: 202 gr
Stýrikerfi
Android
Skjár
Stærð: 6,4"
Týpa: Super AMOLED, 120Hz
Upplausn: 1080 x 2340
PPI: 403
Rafhlaða
Týpa: Li-Po 5000 mAh
Minni
Innra minni: 128GB
Minniskort: Allt að 1TB
Vinnsluminni: 6GB
Myndavél
Auka myndavél: 32 MP, f/2.2
Upplausn: 50 MP, f/1.8, 12 MP, f/2.2, 5
Hugbúnaður
Íslenska
Tölvupóstur
Annað
Örgjörvi: Exynos 1380 (5 nm)
Gagnatengingar
4G
NFC
3G
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.