Vodafone

Samsung Galaxy S23 Ultra

Vörunr. 44049

Framfarir, og það engar smáræðis!

Allt sem þú þarft og meira til. Með Galaxy S23 Ultra breytir Samsung leiknum, aftur. Með bestu myndavélina í síma frá Samsung til þessa: 8K myndbönd og 200 MP myndir jafnt um hábjartan dag og miðja nótt.

Skjár og Rammi
Vafraðu, spilaðu eða hoppaðu á milli forrita með fullkomni svörun frá Galaxy S23 Ultra með 120Hz endurnýjun fyrir mjúka og þægilega upplifun.
6,8“ skjárinn er stór og bjartur. Hann fer hæst upp í 1750 nits svo þú getur horft á bíómynd í símanum bæði heima og undir berum himni.
Galaxy S23 Ultra er hannaður til að endast. Öflug IP68 vatns- og rykvörn verndar símann fyrir umhverfinu. Tímalaus hönnunin skartar fram- og afturhlið úr nýjasta Gorilla Victus 2 glerinu og ramminn er gerður úr ofursterku Armor Aluminum og saman mynda þau skel sem þolir meira. Miklu meira. Auk þess leynist penni inni í hlið símans sem gerir þér kleift að sjá rithönd þína breytast í innslegin texta, skerpa á myndum og vinna í alls konar smáatriðum sem eru of fíngerð fyrir fingur.

Örgjörvi
Örgjörvinn er hjarta símans. Hann lætur allt virka hratt og örugglega, aðlagar sig eftir notkun og sérstillir sig fyrir leikjaspilun. Hann lengir rafhlöðuendinguna og notast við gervigreind til að fanga fullkomnari ljósmyndir með einum smelli.
Snapdragon 8 Gen 2 fyrir Galaxy símana er hraðasti örgjörvinn í Galaxy síma til þessa og gerir S23 Ultra einn besta leikjasímann á markaðnum í dag með 45% kraftmeiri GPU og tvöfalt skilvirkara kælikerfi sem gefur þér forskot áður en þú byrjar leikinn.

Myndavél
Taktu mynd og lýttu inn í myndina til að uppgötva fleiri myndir. Upplausnin í glænýrri 200MP myndavél leyfir þér að prenta myndirnar þínar í ótrúlegum stærðum og gæðum.
Fyrir þá sem vilja fullt vald yfir myndatökunni sinni eru ýmsar stillingar og tól sem opnar endalausan heim af valmöguleikum til að stilla myndavélina eftir þínu höfði.
Fjórar linsur eru á Galaxy S23 Ultra; 200MP aðal linsa, 12MP Ultra Wide 10MP Telephoto og önnur 10MP Telephoto linsa. Þessi linsusamsetning gerir þér kleift upplifa nýjar hæðir í myndbandagæðum með því að taka upp myndbönd í bæði 4K í 60 FPS og 8K í 30 FPS.
Oft kemur fyrir að bestu augnablikin gerast í rökkrinu: flugeldar, sólsetrið, hápunktur partýsins og hingað til hefur reynst erfitt að fanga þessi augnablik á myndvélina. En með tilkomu Galaxy S23 með sjálfvirkum ljósnema næst hvert smáatriði í litli ljósi svo þú getur tekið myndirnar áhyggjulaust eins og þú villt hafa þær, jafnvel í rökkrinu með alveg ótrúlegum smáatriðum.

Sjálfu myndavél
Þökk sé uppfærðum örgjörvanum og endurbættu stýrierfi eru sjálfurnar þínar flottari en nokkru sinni fyrr. Galaxy S23 Ultra færir þér ótrúlegar sjálfur bæði í ljósi sem og myrkri.
Með gervigreind og 3D tækni sem skynjar dýpt við myndatökuna og setur þig í fyrsta sætið verður bakgrunnurinn verður óskýr og andlit þitt birtist í fullkomnum fókus með fallegri lýsingu.

Rafhlaða
Gerðu, sjáðu og upplifðu meira með risastórri 5000 mAh rafhlöðunni. Í samvinnu við örgjörvann og skjáinn er Galaxy S23 Ultra vel stiltur til að gefa þér langan tíma af skemmtun, svo þú getur notað símann lengur á stakri hleðslu.

Snjallir aukahlutir:

Galaxy Buds2 Pro virka vel með Galaxy S23 Ultra, virk hljóðeinangrun gefur þér einstaklega góð hljóðgæði og útilokar meira að segja mýkri hljóð eins og vind.

Samsung S23 Ultra Clear Cover, einfalt hulstur sem ver símann þinn fyrir höggi og rispum

Galaxy S23 Ultra PanzerGlass ver skjá símans fyrir höggi og rispum.

Athugið að hleðslukubbur fylgir ekki með símanum.












Samsung Galaxy S23 Ultra
Veldu lit:
Veldu stærð:

Tækniupplýsingar

Ummál og þyngd
Hæð: 163,4 mm
Vídd: 78,1 mm
Þyngd: 233 g

Stýrikerfi
Android

Skjár
Stærð: 6,8''"
Týpa: Dynamic AMOLED 2X (1~120Hz)
Upplausn: 3088 x 1440
PPI: 500

Rafhlaða
Týpa: 5,000mAh

Minni
Innra minni: 256GB
Minniskort:
Vinnsluminni: 8GB

Myndavél
Auka myndavél: 12MP
Upplausn: 200MP; 10MP; 10MP; 12MP

Hugbúnaður
Íslenska
Tölvupóstur

Annað
Örgjörvi: Qualcomm Snapdragon® 8 Gen 2

Gagnatengingar
4G
NFC

Það er einfalt að koma yfir til Vodafone

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.