Vodafone

Apple Watch Ultra Alpine Loop

Vörunr. MNHH3SO/A

Apple Watch Ultra

Apple Watch Ultra er úr frá Apple með nýrri framúrstefnulegri hönnun og ótrúlegum eiginleikum sem eru byggðir fyrir þrekvirki, landkönnun og ævintýri. Úrkassinn er byggður með málminum títaníum, glerið úr höggheldum safír og er kassinn 49mm hár sem gerir það stærsta úrið með mesta skjáplássið í vörulínu Apple. Á úrinu er nýr Action-takki sem er hægt að sníða að sínum þörfum og kemur þér fyrr á réttan stað. Apple Watch Ultra er með lengstu rafhlöðuendingu allra Apple úra, og endist í allt að 36 klukkutíma við venjulega notkun. Úrið er einnig með nýja orkusparnaðarstillingu sem nær að teygja rafhlöðuna í allt að 60 klukkutíma. Ný skífa, Wayfinder, hefur verið sérstaklega hönnuð til að nýta sér aukið skjápláss og býður upp á innbyggðan áttavita og pláss fyrir allt að átta upplýsingasvæði (e. complications).

Þrjár nýjar ólar, allt eftir því hvaða ævintýri þú hefur í huga

  • Trail Loop er hugsað fyrir hlauparann og þá sérstaklega langhlaupararnn.
  • Alpine Loop fyrir fjallafólkið
  • Ocean Band er svo hugsað fyrir kafarana

Apple Watch Ultra er innblásið af landkönnuðum og íþróttafólki um víða veröld.

Hönnuðir Apple sækja innblástur til landkönnuða og íþróttafólks um allan heim til að búa til nýja vörulínu Apple úra sem þola krefjandi umhverfi. „Apple Watch Ultra er harðgerðasta og öflugasta úr Apple til þessa‟ segir Jeff Williams rekstrarstjóri Apple. „Apple Watch Ultra er sveigjanlegt tól sem gefur fólki vald til þess að auka getu sína við ævintýramennsku, þrekþrautir og landkönnun.‟ .

Stærra, bjartara og harðgerðara

Úrið er byggt úr hágæða títaníum-málmi sem stenst kröfur flugiðnaðarins, sem skilar úrinu fínu jafnvægi fyrir þyngd, endingu og vörn gegn tæringu. Úrkassinn stendur aðeins upp fyrir safír-glerið til að veita skjánum aukna rispu- og höggvörn. Skjárinn er tvöfalt bjartari en fyrri skjáir úra Apple og getur mest birt 2000-nits. Nýi Action-takkinn er í alþjóðlegum appelsínugulum lit sem stendur skarpur á móti lit úrsins og er hægt að velja sér aðgerð fyrir takkann sem kemur þér fyrr inn í Workouts appið, getur búið til punkt fyrir áttavitann, rekið þig til baka á slóða og margt annað.

Ennþá betra hljóð

Það eru þrír innbyggðir hljóðnemar á úrinu sem bæta talsvert talgæði í samtölum við alls konar aðstæður. Úrið nýtir sér hugbúnað til að staðsetja og aðlaga hljóð svo hægt sé að grípa rödd úr hávaða og takmarkar þá í leiðinni bakgrunnshljóð sem skilar skýru hljóði til hlustanda. Í mjög miklu roki getur úrið nýtt sér nýjan hugbúnað byggðan á vélanámi til að takmarka hávaða og skila tæru hljóði fyrir samtöl.


Ný stafræn krúna er stærri og grófari svo hægt sé að nota hana með hönskum.


Þolir vel að vera úti í frosti og hita

pple Watch Ultra þolir allt að -20° frost og 55°C hita. Það hefur verið vottað fyrir MIL-STD-810H, sem er þekkt vottorð hjá framleiðendum harðgerðs búnaðar og hergagnaframleiðenda. Úrið getur kafað niður á 40 metra dýpi og sýnt þér dýptarmælingar. Í samstarfi við Huish Outdoors, mun úrið geta tengst köfunarbúnaði.

Apple Watch Ultra getur farið niður 40 metra dýpi.

Fyrir þrekíþróttir og afreksíþróttafólk

Apple Watch Ultra er frábært tól fyrir afreksíþróttafólk sem ætlar sér að ná nýjum hæðum. Nú í fyrsta sinn styður Apple Watch tvírása GPS, bæði L1 og L5, sem eykur nákvæmni til muna. Úrið nýtir sér einnig hugbúnað til að staðsetja sig betur. Þannig færðu mun betri staðsetningu en áður, sem gefur þér betri innsýn í vegalengdir, hröðun, og leiðsögn fyrir keppnisbrautir.

Ný skífa Apple Watch Ultra, Wayfinder, getur sýnt lifandi áttavita og allt að 8 upplýsingasvæði.

WatchOS 9 stýrikerfi

Apple Watch Ultra styður nýjasta stýrikerfið Apple fyrir snjallúr: WatchOS 9 sem kom út nú í haust. Nýjasta nýtt þar er eiginleikar til að greina hlaup betur með því að skoða lengd stigs, tíma snertingar við jörð, lóðrétta sveiflu og hlaupakraft. Workout appið fær stóra uppfærslu og býður upp á ný viðmót sem sýna hlaupakafla, splitt og hækkun.sjálfkrafa. Rafhlöðuending Apple Watch Ultra dugar nú flestu fólki heilt maraþon, 3,86 km. sund og 180 km. hjólaferð í einni atrennu. Hægt er að stilla Action-takkann þannig hann hefji ykkar eigin hreyfingu, eða færi fólk yfir á næsta stig fjölþrautar.


Nánari upplýsingar

  • 49mm títanrammi, safír gler
  • Retina skjár, alltaf kveikt
  • 2000 nits birtustig
  • IP6X rykvörn
  • MIL-STD 810H prófað
  • Action takki
  • LTE innbyggt
  • 100m vatnsþolið
  • Blóðsúrefnismettun smáforrit
  • ECG hjartalínurit
  • Púlsmælir
  • Lætur vita um frávik og óreglulegan hjartslátt
  • Hitamælir
  • Áætlar egglos innan tíðahringsins
  • SOS neyðarsímtöl
  • Alþjóðleg neyðarsímtöl
  • Fallvörn
  • Skynjar bílaárekstur
  • Áttaviti
  • Hæðarmælir, alltaf virkur
  • 86dB sírena (neyðartilfelli)
  • GPS (tvær tíðnir)
  • Allt að 36 tíma rafhlaða
  • Hraðhleðsla












Apple Watch Ultra Alpine Loop
Veldu lit:
Veldu stærð:

Það er einfalt að koma yfir til Vodafone

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.