Vodafone

Galaxy Ring Black

Vörunr. 44973

Samsung Galaxy Ring – Snjallhringurinn sem sameinar tækni og stíl

Upplifðu fullkomna samblöndu af tísku og tækni með Samsung Galaxy Ring. Snjallhringurinn fylgist með heilsunni þinni og daglegum athöfnum á einfaldan og stílhreinan hátt. Með þremur innbyggðum skynjurum sem mæla hjartslátt, súrefnismettun, svefnmynstur. Tengdu hann við Samsung Health appið eða önnur Galaxy tæki og fáðu heildstæða yfirsýn yfir heilsuna þína og æfingar.

Hönnun sem endist
Samsung Galaxy Ring er smíðaður úr endingargóðu og léttu títaníum, sem tryggir hámarks þægindi allan daginn. Hringurinn er með sérhannaðri hönnun sem lágmarkar rispur og viðheldur fallegu útliti.

 
Heilsumælingar

  • Mælir hjartslátt, súrefnismettun og svefnmynstur með mikilli nákvæmni.
  • Veitir innsýn í orkustig þitt með Energy Score í Samsung Health appinu, ásamt sérsniðnum ráðum til að bæta lífsstílinn.
  • Vatns- og rykvörn (IP68) tryggir að þú getur notað hringinn í sundi eða við hvers kyns æfingar, án áhyggna.


Hluti af Galaxy vistkerfinu

  • Tengdu hringinn við Galaxy snjallúr og fáðu ítarlegar mælingar á líkamsástandi þínu.
  • Taktu stjórn með einföldum handarhreyfingum – t.d. klíptu tvisvar til að taka mynd á Galaxy símanum þínum eða slökkva vekjaraklukkuna.
  • Fullkomin lausn fyrir þá sem vilja hámarka notkun Galaxy vörufjölskyldunnar.

Að finna rétta stærð
Samsung Galaxy Ring kemur í nokkrum stærðum til að tryggja að hann passi fullkomlega. Til að finna réttu stærðina er mælt með því að kaupa mátunarsett og prófa stærðirnar. Þú skilar svo mátunarsettinu og við látum það ganga upp í kaupin á hringnum.

Rafhlöðuending
Njóttu allt að 7 daga rafhlöðuendingar á einni hleðslu. Hringurinn kemur með hleðsluboxi með LED-ljósum sem sýna stöðu hleðslunnar. Athugið að rafhlöðuending getur verið breytileg eftir stærð hringsins og notkun.

Samsung Galaxy Ring er tilvalin lausn fyrir þá sem vilja fylgjast með heilsu sinni á einfaldan og stílhreinan hátt. Komdu þér í takt við framtíðina með snjallri tækni í sinni fullkomnustu mynd.

Í kassanum
  • Galaxy Ring snjallhringur
  • Hleðslubox
  • USB hleðslusnúra


Galaxy Ring Black
Veldu stærð:

Það er einfalt að koma yfir til Vodafone

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.