Vodafone

Samsung Galaxy S23

Vörunr. 44031

Notfærðu þér alla 24 klukkutíma sólarhringsins.

Umtalsvert mikið meiri kraftur fyrir umtalsvert mikið meira frelsi. Samsung Galaxy S23 hefur allt sem þarf til að fullnýta hvert augnablik.

Skjár og Rammi
Galaxy S23 skartar björtum og fallegum 6,1“ skjá. Þú getur horft á bíómynd í símanum, bæði heima og undir berum himni þökk sé björtum skjánum (1750 nits). Hreyfingar í símanum verða einnig mjúkar og þægilegar með allt að 120Hz endurnýjun.
Galaxy S23 er hannaður til að endast. Öflug IP68 vatns- og rykvörn verndar símann fyrir umhverfinu. Fram- og afturhliðin er úr nýjasta Gorilla Victus 2 glerinu og ramminn er gerður úr ofursterku Armor Aluminum og saman mynda þau skel sem þolir meira. Miklu meira.

Örgjörvi
Örgjörvinn er hjarta símans. Hann lætur allt virka hratt og örugglega, aðlagar sig eftir notkun og sérstillir sig fyrir leikjaspilun. Hann lengir rafhlöðuendinguna og notast við gervigreind til að fanga fullkomnari ljósmyndir með einum smelli.
Snapdragon 8 Gen 2 fyrir Galaxy símana er hraðasti örgjörvinn í Galaxy síma til þessa og gerir S23 einn besta leikjasímann á markaðnum í dag með 45% kraftmeiri GPU og tvöfalt skilvirkara kælikerfi sem gefur þér forskot áður en þú byrjar leikinn.

Myndavél
Galaxy S23 er með flotta myndavél og þökk sé háþróaðrar gervigreindar er hlutverk þitt sem myndasmiður orðinn leikur einn. Nú getur þú tekið ljósmyndir og myndbönd eins og atvinnumaður með einum smelli. Þrjár linsur eru á símanum; 50MP aðallinsa, 12MP Ultra Wide og 10MP Telephoto linsa. Þessi linsusamsetning gerir þér kleift upplifa nýjar hæðir í myndbandagæðum með því að taka upp myndbönd í bæði 4K í 60 FPS og 8K í 30 FPS.
Oft kemur fyrir að bestu augnablikin gerast í rökkrinu: flugeldar, sólsetrið, hápunktur partýsins og hingað til hefur reynst erfitt að fanga þessi augnablik á myndvélina. En með tilkomu Galaxy S23 með sjálfvirkum ljósnema næst hvert smáatriði í litli ljósi svo þú getur tekið myndirnar áhyggjulaust eins og þú villt hafa þær, jafnvel í rökkrinu.

Sjálfumyndavél
Atvinnumyndataka í stúdíói eða þú í sófanum heima hjá þér? Galaxy S23 gerir sjálfurnar þínar ennþá betri með gervigreind og 3D tækni sem skynjar dýpt við myndatökuna og setur þig í fyrsta sætið. Bakgrunnurinn verður óskýr og andlit þitt birtist í fullkomnum fókus með fallegri lýsingu.

Rafhlaða
Rafhlaðan er ekki bara stór og kraftmikil (3900 mAh) heldur er hún einnig bráðsnjöll. Með því að læra inn á og aðlaga sig eftir notkun þinni sparar hún sig og endist lengur á stakri hleðslu. Galaxy S23 styður einnig við hraðhleðslu sem gerir þér kleift að hlaða símann í 50% á 30 mínútum.

Snjallir aukahlutir:

Galaxy Buds2 Pro virka vel með Galaxy S23, virk hljóðeinangrun gefur þér einstaklega góð hljóðgæði og útilokar meira að segja mýkri hljóð eins og vind.

Samsung S23 Clear Cover, einfalt hulstur sem ver símann þinn fyrir höggi og rispum

Galaxy S23 PanzerGlass ver skjá símans fyrir höggi og rispum.

Athugið að hleðslukubbur fylgir ekki með símanum.







Samsung Galaxy S23
Veldu lit:
Veldu stærð:

Tækniupplýsingar

Ummál og þyngd
Hæð: 70,9 mm
Vídd: 146,3 mm
Þyngd: 168 g

Stýrikerfi
Android

Skjár
Stærð: 6,1''"
Týpa: Dynamic AMOLED 2X (48~120Hz)
Upplausn: 2340 x 1080
PPI: 393

Rafhlaða
Týpa: 3,900mAh

Minni
Innra minni: 128GB
Minniskort:
Vinnsluminni: 8GB

Myndavél
Auka myndavél: 12MP
Upplausn: 50MP; 10MP;12MP

Hugbúnaður
Íslenska
Tölvupóstur

Annað
Örgjörvi: Qualcomm Snapdragon® 8 Gen 2 (4nm TBD)

Gagnatengingar
4G
NFC

Það er einfalt að koma yfir til Vodafone

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.