Til að opna á áskriftina í sumarbústaðnum er um nokkra möguleika að velja.
Áður en lagt er af stað að heiman þarf að muna að taka með sér Vodafone Digital myndlykilinn, fjarstýringu fyrir myndlykilinn og skarttengi. Í sumarbústaðnum þarf að vera UHF greiðuloftnet og sjónvarp til að fá áskriftina inn.
Eftirfarandi áskriftarleiðir eru í boði fyrir sumarbústaðaráskriftir:
- 1. Taka með sér loftnetslykil að heiman í bústaðinn og áskriftarkortið úr honum.
- Kostnaður aukalega: Enginn
- Láta lykilinn leita sjálfvirkt þegar búið er að tengja hann
- Leita aftur þegar komið er heim.
- 2. Hafa leigulykil í bústaðnum og fara með áskriftarkortið með sér í sumarbústaðinn (einungis fyrir viðskiptavini með loftnetslykil heima).*
- Kostnaður aukalega: Leigugjald á myndlykli samkvæmt verðskrá
- Myndlykillinn í sumarbústaðnum verður að vera skráður á sömu kennitölu og lykillinn heima.
- Kortið sett í lykilinn og áskriftin dettur inn allt að 30 mínútum seinna (hafið samband við þjónustur Vodafone í síma 1414)
- Muna að taka kortið með sér aftur heim.
- 3. Færa áskrift á milli lykla (vera með myndlykil í sumarbústaðnum).
- Kostnaður aukalega: Leigugjald á myndlykli samkvæmt verðskrá
- Hringja í áskriftardeild Stöðvar 2 (s. 5125100 og velja 1) til að færa áskriftina að heiman í sumarbústaðinn.
- 4. Föst helgaráskrift (vera með myndlykil í sumarbústaðnum)
- Kostnaður aukalega: Sumarhúsaáskrift skv. gjaldskrá Stöðvar 2 að viðbættu leigugjaldi myndlykils samkvæmt verðskrá
- Hringja í áskriftardeild Stöðvar 2 (s. 5125100 og velja 1) og kaupa helgaráskrift.
- Opnast sjálfkrafa á myndlykilinn á föstudögum og lokast á sunnudögum.
- Lykillinn er opinn heima á meðan.
Tengingar og leit að stöðvum:
Tengja loftnetið efst til vinstri í Ant-In og skartsnúru úr neðra skarttenginu á lyklinum í sjónvarpið. Næst þarf að láta lykilinn leita sjálfvirkt að sjónvarpsstöðvum.
Þegar búið er að vista stöðvarnar og setja kortið í lykilinn þá getur tekið allt að 30 mín fyrir lykilinn að sækja stöðvarnar.
*Ef áskrifandi kýs að færa aðal áskriftina yfir á auka-loftnetsmyndlykilinn tímabundið, t.d. til að taka með í bústaðinn, telst lykilinn ekki lengur sem frír aukalykill og rukkast leigugjald á myndlykli samkvæmt verðskrá. Mikilvægt er að hafa samband við þjónustuver okkar í síma 1414 til að óska eftir slíkri breytingu.