Vodafone

Samsung Galaxy S25 Plus

Vörunr. 45079.

Tryggðu þér eintak með því að versla hér.
Fyrstu tækin voru afhent 29.jan og næstu sendingar koma hvað á hverju.
Við munum svo láta þig vita þegar þitt tæki er komið


Nýttu þér kynningartilboð sem stendur til 2.mars
Með því að versla tækið núna færðu tilboðið "tvöfalt minni".
Þú kaupir t.d. 512GB týpu en greiðir bara 256GB verðið
Verðin á síðunni endurspegla þetta tilboð nú þegar

S25+ 256GB kostar 209.990 kr
S25+ 512GB kostar 229.990 kr (tilboðsverð 209.990 kr)



Einnig getur þú sótt um kaupauka í formi BUDS3 Pro heyrnatóla HÉR þegar þú ert komin með tækið í hendur


Nýja stjarnan frá Samsung er mætt á svæðið.....Samsung Galaxy S25+!


AI virknin í þessum síma er skemmtileg viðbót við annars framúrskarandi tæki til að byrja með.

Tæknin gerir þér kleift að tala í rauntíma við annan aðila sem talar allt annað tungumál en þú. AI sér til þess að þið skiljið hvort annað og getur einnig tekið hljóðbút saman í texta þannig að þú eigir uppskrifað.
AI hjálpar líka til við myndvinnslu enda er hægt að stroka hluti út úr mynd eftir á eða jafnvel hringa utan um hlut og láta tæknina finna á vefnum með hálp Google.
Framtíðin er sannarlega mætt.

Skjár og Rammi

Galaxy S25+ skartar björtum og fallegum 6,7“ skjá. Þú getur horft á bíómynd í símanum, bæði heima og undir berum himni þökk sé björtum skjánum (2600 nits). Hreyfingar í símanum verða einnig mjúkar og þægilegar með allt að 120Hz endurnýjun.
Galaxy S25+ er hannaður til að endast. Öflug IP68 vatns- og rykvörn verndar símann fyrir umhverfinu. Fram- og afturhliðin er úr nýjasta Gorilla Victus 2 glerinu og ramminn er gerður úr ofursterku Armor Aluminum 2.0 og saman mynda þau skel sem þolir meira. Miklu meira.

Örgjörvi
Örgjörvinn er hjarta símans. Hann lætur allt virka hratt og örugglega, aðlagar sig eftir notkun og sérstillir sig fyrir leikjaspilun. Hann lengir rafhlöðuendinguna og notast við gervigreind til að fanga fullkomnari ljósmyndir með einum smelli.
Snapdragon 8 Elite fyrir Galaxy símana er hraður örgjörvi sem gerir S25+ einn besta leikjasímann á markaðnum í dag með kraftmeiri GPU og gríðarlega skilvirkt kælikerfi sem gefur þér forskot áður en þú byrjar leikinn.

Myndavél
Galaxy S25+ er með flotta myndavél og þökk sé háþróaðrar gervigreindar er hlutverk þitt sem myndasmiður orðinn leikur einn. Nú getur þú tekið ljósmyndir og myndbönd eins og atvinnumaður með einum smelli. Þrjár linsur eru á símanum; 50MP aðallinsa, 12MP Ultra Wide og 10MP Telephoto linsa. Þessi linsusamsetning gerir þér kleift upplifa nýjar hæðir í myndbandagæðum með því að taka upp myndbönd í bæði 4K í 60 FPS og 8K í 30 FPS.
Oft kemur fyrir að bestu augnablikin gerast í rökkrinu: flugeldar, sólsetrið, hápunktur partýsins og hingað til hefur reynst erfitt að fanga þessi augnablik á myndvélina. En með tilkomu Galaxy S25+ með sjálfvirkum ljósnema næst hvert smáatriði í litli ljósi svo þú getur tekið myndirnar áhyggjulaust eins og þú villt hafa þær, jafnvel í rökkrinu.

Sjálfumyndavél
Atvinnumyndataka í stúdíói eða þú í sófanum heima hjá þér? Galaxy S25+ gerir sjálfurnar þínar ennþá betri með gervigreind og 3D tækni sem skynjar dýpt við myndatökuna og setur þig í fyrsta sætið. Bakgrunnurinn verður óskýr og andlit þitt birtist í fullkomnum fókus með fallegri lýsingu.

Rafhlaða
Rafhlaðan er ekki bara stór og kraftmikil (4900 mAh) heldur er hún einnig bráðsnjöll. Með því að læra inn á og aðlaga sig eftir notkun þinni sparar hún sig og endist lengur á stakri hleðslu. Galaxy S25+ styður einnig við hraðhleðslu sem gerir þér kleift að hlaða símann í 50% á 30 mínútum.

Snjallir aukahlutir:

Galaxy Buds3 Pro virka vel með Galaxy S25 Ultra, virk hljóðeinangrun gefur þér einstaklega góð hljóðgæði og útilokar meira að segja mýkri hljóð eins og vind.

Samsung S25+ filma ver skjá símans fyrir höggi og rispum

Samsung S25+ Silikon hulstur er einfalt hulstur sem ver símann þinn fyrir höggi og rispum

Athugið að hleðslukubbur fylgir ekki með símanum.






Samsung Galaxy S25 Plus
Veldu lit:
Veldu stærð:

Tækniupplýsingar

Ummál og þyngd
Hæð: 158,4 mm
Vídd: 75,8 mm
Þyngd: 190 g

Stýrikerfi
Android

Skjár
Stærð: 6,7"
Týpa: Dynamic AMOLED 2X (1~120Hz)
Upplausn: 3120 x 1440
PPI: 498

Rafhlaða
Týpa: 4,900mAh

Minni
Innra minni: 512GB
Minniskort:
Vinnsluminni: 12GB

Myndavél
Auka myndavél: 12MP
Upplausn: 50MP; 10MP;12MP

Hugbúnaður
Íslenska
Tölvupóstur

Annað
Örgjörvi: Snapdragon 8 Elite

Gagnatengingar
4G
NFC
3G

Það er einfalt að koma yfir til Vodafone

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.