Útlönd
Hvort sem þú ert að fara til útlanda eða að hringja þangað þá færðu góð kjör á símanotkun hjá Vodafone.
Fara eða hringja?
Sé Reiki í Evrópu í landinu sem þú ferðast til getur þú verið eins og heima hjá þér en við mælum annars með Ferðapakkanum sé hann í boði.
Kynntu þér kjörin hér fyrir neðan.
Vertu eins og heima hjá þér með
Reiki í Evrópu
Reiki í Evrópu felur í sér að innifalin notkun í farsímaþjónustunni þinni sem þú kaupir hjá Vodafone gilda í öllum löndum innan EU/EES. Það þýðir að þú getur hringt, sent SMS eða notað gagnamagnið eins og þú sért á Íslandi. Við mælum með að þú kynnir þér hvers mörg GB þú getur notað innan EU/EES í þinni áskriftarleið.
Ferðapakki
Vodafone
Sé Reiki í Evrópu ekki í boði þá bjóðum við Ferðapakka í ákveðnum löndum utan Evrópu sem tryggir bestu kjörin í þeim löndum. Viðskiptavinir í áskrift geta skráð sig fyrir Ferðapakkanum en Frelsisnotendur geta keypt hann hér á vefnum eða á mínum síðum. Pakkinn inniheldur ótakmörkuð símtöl heim til Íslands og innan landsins sem þú ert í og 500 MB af gagnamagni. Ef gagnamagnið klárast bætast við önnur 500 MB á 990 kr. Daggjaldið miðast við íslenskan sólarhring.
990 kr.
á dag
Hafðu samband ef síminn týnist
Við getum öll lent í því að símtækið okkar týnist eða að því sé stolið á ferðalagi erlendis. Til að lágmarka skaðann af sviksamlegri notkun þarf SIM-kortið að vera læst með PIN og um leið og stuldur uppgötvast þarf að láta loka því. Það er gert með því að hafa samband við þjónustuver okkar í síma +354 599 9009.
Það er einfalt að koma yfir
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Aðstoð
AfgreiðslutímarUmboðsaðilarHjálpVettvangsþjónustaStillingarSamskiptaleiðirVerðskráMínar síður umsóknSuðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528