![Simi - Stöð 2 appið-Simi - Stöð 2 appið-img](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.ctfassets.net%2Fu0ns9p1dn2b1%2Fr0cC5186JL52ZJCZoxrMW%2Fffaa3b22cecca18260c118f6549df14b%2Fsinmi-80.jpg&w=3840&q=75)
![Simi - Stöð 2 appið-Simi - Stöð 2 appið-img](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.ctfassets.net%2Fu0ns9p1dn2b1%2Fr0cC5186JL52ZJCZoxrMW%2Fffaa3b22cecca18260c118f6549df14b%2Fsinmi-80.jpg&w=1080&q=75)
Hvað er hægt að gera í Stöðvar 2 appinu?
Stöðvar 2 appið er sjónvarpsapp fyrir snjallsíma og spjaldtölvur sem allir geta sótt sér án endurgjalds. Með því getur þú horft á sjónvarpsútsendingar, notað tímavél til að flakka í dagskránni og séð frelsisefni sjónvarpsstöðvanna. Áskrifendur að Stöð 2+ geta streymt efni hvar og hvenær sem er ásamt því að horfa á þær stöðvar sem þeir eru áskrifendur að. Áskrifendur geta horft á Stöð 2, Stöð 2 sport og Stöð 2+ á WiFi innan evrópska efnahagssvæðisins.
Stuðningur við Chromecast og AirPlay
Þú getur tengt Stöðvar 2 appið við Chromecast og AirPlay sem þýðir að þeir sem eiga Chromecast tæki eða Apple TV geta varpað myndefninu úr símanum yfir á sjónvarpsskjáinn.
Tímavélin
Með tímavél er hægt að flakka allt að fjórar klukkustundir til baka í sjónvarpsútsendingunni. Sé efni pantað í Stöð 2+ í Stöðvar 2 appinu er hægt að stöðva áhorf, færa sig yfir í sjónvarpið og horfa frá þeim stað sem spilun var hætt.
Horfðu í Apple TV og í Vefsjónvarpi
Notendur geta sótt sér Stöðvar 2 appið í Appstore í gegn um AppleTV 4 eða Apple TV 4K. Á slóðinni sjonvarp.stod2.is má svo finna vafraútgáfu sem hægt er að njóta alls þess sama efnis og er í boði í gegnum símtækin og AppleTV.
Spurt og svarað
Hvernig sæki ég Stöðvar 2 appið ?
Þú getur sótt appið í App store eða Google play store.
Hvernig stofna ég aðgang í Stöðvar 2 appinu?
1. Þú byrjar á því að sækja Stöðvar 2 appið í App store eða Google play store.
2. Opnar appið og velur "Nýskrá".
3. Næst slærð þú inn netfangið þitt, símanúmer og kennitölu áskrifanda.
4. Smellir svo á "Halda áfram" og þá færðu SMS kóða í símanúmerið sem þú skráðir í skrefinu á undan.
5. Þú velur þér lykilorð og þá er nýskráningu lokið.
6. Í lokin skráir þú þig inn með því netfangi og lykilorði sem þú valdir.
Hvernig stofna ég aðgang í Apple TV?
Þú byrjar á að opna slóðina https://sjonvarp.stod2.is/ í vafra (Google Chrome, Safari, Firefox, Explorer).
Þar velur þú „Innskráning“ sem er efst í hægra horninu.
Næst smellir þú á hvíta hnappinn neðst þar sem stendur „Nýskrá“
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.ctfassets.net%2Fu0ns9p1dn2b1%2F6BKvDxX037MeWeSWdedO62%2F6f1c99f195a9189ec562680c50a95741%2FStod2appid_appletv_nyskraning_1_tiny.jpg&w=3840&q=75)
Næst slærð þú inn netfang, símanúmer og kennitölu áskrifanda og smellir á „Halda áfram“.
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.ctfassets.net%2Fu0ns9p1dn2b1%2F7vN6BGRfcGIajENJYE1LN7%2F1e07576dedbd371bddf29a654a200048%2FStod2appid_appletv_nyskraning_2_tiny.jpg&w=3840&q=75)
Nú ættir þú að fá sendan SMS kóða í farsímanúmerið sem þú skráðir í skrefinu á undan. Þú slærð inn kóðann sem stendur í skilaboðunum og smellir á „Halda áfram“.
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.ctfassets.net%2Fu0ns9p1dn2b1%2F5bIg0Usshm9IHmBg0MtGsU%2Fd3c93c68855c16ae54a1d90acc77a478%2FStod2appid_appletv_nyskraning_3_tiny.jpg&w=3840&q=75)
Því næst velur þú lykilorð sem þarf að slá inn tvisvar sinnum.
Núna ættir þú að vera kominn með aðgang.
Næst smellir þú á „Innskráning“ í hægra horninu í vafranum.
Fyllir inn netfang og lykilorð og smellir á „Innskrá“.
Að lokum stimplar þú inn kóðann á sjónvarpsskjánum í lokaskrefinu í vafranum.
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.ctfassets.net%2Fu0ns9p1dn2b1%2F76LmI0dd3JNFoo5WqFug6R%2Fea847581ff301bb7e792548434c789ba%2FStod2appid_appletv_nyskraning_7_tiny.jpg&w=3840&q=75)
Hvernig stofna ég aðgang í Vefsjónvarpinu?
Þú byrjar á að opna slóðina https://sjonvarp.stod2.is/ í vafra (Google Chrome, Safari, Firefox, Explorer).
Þar velur þú „Innskráning“ sem er efst í hægra horninu.
Næst smellir þú á hvíta hnappinn neðst þar sem stendur „Nýskrá“
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.ctfassets.net%2Fu0ns9p1dn2b1%2F6Up9VDGE6l1DqwiFV3mJgD%2Fb075b350d9943e4d5bb4dbac3a5e4ea4%2FStod2appid_vefsjonvarp_nyskraning_1_tiny.jpg&w=3840&q=75)
Næst slærð þú inn netfang, símanúmer og kennitölu áskrifanda og smellir á „Halda áfram“.
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.ctfassets.net%2Fu0ns9p1dn2b1%2F1nFbNyDVlB5qM3au4I4rxW%2Ffe141e7c2e5ebaef29086f8596ba3cf8%2FStod2appid_vefsjonvarp_nyskraning_2_tiny.jpg&w=3840&q=75)
Nú ættir þú að fá sendan SMS kóða í farsímanúmerið sem þú skráðir í skrefinu á undan. Þú slærð inn kóðann í skilaboðunum og smellir á „Halda áfram“.
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.ctfassets.net%2Fu0ns9p1dn2b1%2F4uVyb7AMAKJYWcWCoUpKl7%2F3429b5da91becaf42439ea484cc11d60%2FStod2appid_vefsjonvarp_nyskraning_3_tiny.jpg&w=3840&q=75)
Því næst velur þú lykilorð sem þarf að slá inn tvisvar sinnum.
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.ctfassets.net%2Fu0ns9p1dn2b1%2F4M5B5py0PUA43QwtW6M2L%2Fae782e00050fc93791c0f39384125526%2FStod2appid_vefsjonvarp_nyskraning_4_tiny.jpg&w=3840&q=75)
Núna ættir þú að vera kominn með aðgang.
Næst smellir þú á „Innskráning“ í hægra horninu í vafranum.
Fyllir inn netfang og lykilorð og smellir á „Innskrá“.
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.ctfassets.net%2Fu0ns9p1dn2b1%2F4TqorAvxLqetozVcRzbpuq%2Fed59ad79283505f85fc4145a3e08cd58%2FStod2appid_vefsjonvarp_nyskraning_5_tiny.jpg&w=3840&q=75)
Ég fæ ekki áskrift inn í appið, hvað get ég gert ?
Þú getur haft samband við okkur og við aðstoðum þig.
Hversu margir geta horft á sama aðgangi hverju sinni ?
Allt að fimm tæki á sömu nettengingu geta horft samtímis.
Það er einfalt að koma yfir
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528