Öruggara
DDoS-varið net
Vodafone á Íslandi býður afkastamikla og skalanlega DDoS vörn sem fylgir öllum nettengingum. DDoS eru svokallaðar dreifðar álagsárásir (Distributed Denial of Service) sem skapa hættu fyrir tölvukerfi fyrirtækja og stofnana.
Hvernig kemur þú í veg fyrir
rekstrarstöðvanir
vegna
DDoS
árása?
Innbyggð DDoS vörn Vodafone hentar allflestum fyrirtækjum landsins. Fyrir þau sem þurfa enn öflugri DDoS varnir þá erum við með lausn fyrir þig. Hafðu samband og við tengjum þig við netsérfræðinga okkar sem meta þarfir þíns fyrirtækis.
Þrjár
samtengdar
hreinsunarstöðvar
Vodafone er með DDoS scrubbing (DDoS varnir) miðjur í London, Amsterdam og Frankfurt. Þrjár samtengdar hreinsunarstöðvar, sem verja hverja aðra, margfalda afköstin.
Hvað e
r
DDoS árás?
Algengustu DDoS (distributed-denial of service) árásum má skipta í tvo flokka: Magnárásir Herjað er á þekkta veikleika í netþjónum sem og á vírussýktar vélar. Óeðlilegur fjöldi pakka er sendur á vefþjón frá aðskildum stöðum, sem erfitt er að greina og loka fyrir á einfaldan hátt. Markmiðið er að valda slíku álagi að nettenging detti niður. Afmarkaðar árásir Ráðist er á tilteknar þjónustur eins og t.d. vefþjónustur. Búið er til þannig álag á vefþjóna að þeir eigi erfitt með að sinna eðlilegri umferð. Allar nettengingar Vodafone eru með DDoS vörn sem hentar allflestum fyrirtækjum landsins.
Enn öflugri
DDoS vörn
Reki fyrirtækið þitt viðkvæmar þjónustur á netinu er hægt að kaupa afmarkaðri vörn fyrir vef- og DNS-þjónustur. Eins getur Vodafone sérsniðið varnir fyrir starfsemina. Hafið samband og ráðgjafar okkar meta stöðuna með ykkur.
Kostir og eiginleikar
Mínar síður
Þjónustan er aðgengileg í gegnum Mínar síður Vodafone þar sem er mögulegt að fylgjast með stöðu árása, stöðu hreinsunar og fleiri þáttum er varða þjónustuna.
Gríðarleg afkastageta
Samstarfsaðili Vodafone rekur fjölmargar hreinsunarstöðvar á heimsvísu sem geta hreinsað frá árásarumferð áður en umferð er afhend til viðskiptavina eða minnkað árásir niður í viðráðanlegri stærðir.
Mikil álagsdreifigeta
Fjöldi hreinsunarstöðva tryggir að hægt er að álagsdreifa stærri árásum á marga staði og bregðast betur við þeim, í árásum er árásarumferð beint inn á aðrar leiðir til að tryggja að stærsti hluti árásar fari í gegnum vörnina.
Forgreining og eftirlit
Notast er við viðurkenndan búnað frá leiðandi aðila auk þess sem unnin er forgreining allan sólarhringinn, alla daga ársins þar sem hrein umferð er greind frá frá óhreinni.
Forhreinsun umferðar
Í þeim tilvikum þar sem þörf myndast á hreinsun eru viðbótar síur settar á eldveggi við alþjóðlegar internetgáttir í þeim tilgangi að forhreinsa augljósa óhreina umferð.
Tryggðu tekjuflæði og ímynd fyrirtækisins
Það að verða fyrir stórri DDoS árás getur verið mjög kostnaðarsamt. DDoS vörn Vodafone getur hjálpað þér að koma í veg fyrir mögulegt tekjutap og orðsporshnekki sem geta orðið í kjölfar slíkrar árásar.
Það er einfalt að koma yfir
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528