Fréttir

Strætóskýli verður jólastofa Vodafone

Í gær keyrðum við upp jólagleðina í Vodafone og breyttum strætó­skýli á Kringlu­mýr­ar­braut í svo­kallaða jóla­stofu sem mun standa næstu 10 daga.

1. desember 2023

strætóskýli jól 1-strætóskýli jól 1-img

Þak hefur verið smíðað á skýlið og það er meðal ann­ars upp­hitað, teppa­lagt með sófa og sjón­varpi.

Þetta er í fyrsta sinn sem sjón­varp er tengt strætó­skýli á Íslandi en þar verður hægt að horfa á jólamyndir frá Voda­fo­ne Leig­unni á meðan beðið er eft­ir strætó. 

Strætóskýli jól sjónvarp-Strætóskýli jól sjónvarp-img

Jól­in eru oft stút­full af stressi. Okk­ur langaði að minnka jóla­stressið, mæta þar sem hraðinn er hvað mest­ur og gleðja fólk á ferðinni. Skýlið er hluti af nýrri jóla­her­ferð hjá okk­ur sem heit­ir Rauð jól, en fyr­ir okk­ur standa rauð jól ekki fyr­ir snjó­leysi held­ur tákna þau meiri skemmt­un, betra sam­band og eitt­hvað óvænt. Strætó stof­an okk­ar er einn liður í því að koma fólki á óvart um jól­in en á meðan skýlið stend­ur verða ýms­ar óvænt­ar uppá­kom­ur þar, í dag mætt­um við til dæm­is með jóla­gjaf­ir og heitt kakó fyr­ir þá sem biðu,“ seg­ir Lilja Krist­ín Birg­is­dótt­ir, forstöðumaður markaðs- og sam­skipta­mála hjá Voda­fo­ne.

Strætóskýli Jól Lilja-Strætóskýli Jól Lilja-img

Deila

Það er einfalt að koma yfir

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.

vodafone

Fylgdu okkur

Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528