Fréttir

Hugur okkar er hjá Grindvíkingum

Við höfum ákveðið að fella niður kostnað vegna fjarskipta hjá íbúum búsettum í Grindavík út nóvember og fyrirtækja þar í viðskiptum við okkur.

13. nóvember 2023

Grindavík 3-Grindavík 3-img

Við höfum ákveðið að fella niður kostnað vegna fjarskipta hjá íbúum búsettum í Grindavík út nóvember og fyrirtækja þar í viðskiptum við okkur.

Hugur okkar er allur hjá fjölskyldum sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín um helgina og við viljum ekki að reikningar séu eitthvað sem fólk þurfi að hafa áhyggjur af á þessum tímum. Við munum bregðast aftur við með sama hætti desember ef nauðsyn þykir. Ef íbúar eru nú staðsettir í húsnæði þar sem ekki er net er þeim velkomið að koma í verslanir Vodafone og fá 5G nettengingar þeim að kostnaðarlausu. Við hvetjum þá sem eru með fyrirspurnir til að hika ekki við að heyra í okkur. 

Viðbragðsteymi Vodafone vinnur áfram hörðum höndum með Neyðarlínu, Almannavörum og öðrum fjarskiptafélögum að tryggja örugg fjarskipti við Grindavík. 

Deila

Það er einfalt að koma yfir

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.

vodafone

Fylgdu okkur

Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528