Vodafone
Spurt og svarað

Fjölskyldupakkinn

Hvað er innifalið í Fjölskyldupakka Vodafone?
Í Fjölskyldupakka Vodafone færð þú tvær ótakmarkaðar farsímaáskriftir, ótakmarkað internet og ótakmarkaða skemmtun á Stöð 2 og Stöð 2+. Að sjálfsögðu er einnig innifalið aðgangsgjald gagnaveitu, myndlykill og netbeinir (router).
Hvað þýðir ótakmarkað internet?
Ótakmarkað upp og niðurhal á bæði innlendri og erlendri umferð. Þú nýtur allra mesta hraða sem í boði er á þínu svæði.
Hvað er mikið gagnamagn innifalið í Reiki í Evrópu?
Það eru 20 GB innifalin í Reiki í Evrópu fyrir báða farsímana. Ef farið er umfram innifalið gagnamagn í Reiki í Evrópu bætist við álag, 0,55 kr./Mb. Krakkakortin eru með 2 GB innifalin í Reiki í Evrópu.
Get ég bætt við mig farsíma?
Já, þú getur bætt við Fjölskyldukorti á 2.890 kr. Fjölskyldukortið er með ótakmörkuð símtöl og SMS og deilir inniföldu gagnamagni með ótakmörkuðu farsímunum í Fjölskyldupakkanum. Öðrum orðum: viðbótar ótakmarkaður farsími á 2.890 kr.
Ég þarf ekki tvo farsíma?
Meðalheimilið greiðir fyrir tvo farsíma og því inniheldur Fjölskyldupakkinn tvo ótakmarkaða farsíma. Ef þú þarft ekki tvo farsíma þá má geyma það að virkja annan þar til síðar, nú eða bjóða besta vini þínum eða nánum ættingja upp á farsímaáskrift á stærsta 4G farsímakerfi landsins.
Get ég fengið fleiri myndlykla?
Já, það er ekkert mál að bæta við aukamyndlykli á aðeins 1.390 kr. á mánuði.
Get ég sleppt myndlykli?
Myndlykilinn er innifalin í Fjölskyldupakkanum og við mælum að sjálfsögðu með því að nýta það. Samsung UHD/4K myndlykill tryggir hámarksmyndgæði, aðgang að leigunni í þægilegu viðmóti Vodafone sjónvarps. Einnig er í boði að nota Stöð 2 appið, sem er aðgengilegt í iOS, Android, Apple TV, Android TV og Amazon Fire TV.
Hvað geta mörg ungmenni á heimili fengið krakkakort?
Engin takmörk eru á fjölda krakkakorta á heimili. Öll ungmenni heimilisins yngri en 25 ára geta fengið krakkakort.
Hvað er innifalið í krakkakorti?
Í Krakkakorti eru innifalin ótakmörkuð símtöl og SMS, ásamt 2 GB af gagnamagni sem endurnýjast mánaðarlega. Einnig er hægt að bæta við aukagagnamagni á hagstæðum kjörum.
Get ég gert breytingar á pakkanum?
Ekki er hægt að taka stakar þjónustur út úr Fjölskyldupakkanum en einfalt er að bæta við auka þjónustum, t.d. auka farsíma, auknum sjónvarpsáskriftum, gagnakortum, heimasíma og fleira.
Get ég bætt við mig gagnakorti?
Já, þú getur bætt við gagnakorti á 890 kr. Gagnakortið deilir inniföldu gagnamagni með farsímum í Fjölskyldupakkanum.
Get ég bætt við mig heimasíma?
Já, viðskiptavinir í Fjölskyldupakkanum geta bætt við heimasíma á aðeins 1.200 kr á mánuði.
Er eitthvað smáa letur?
Nei, í Fjölskyldupakkanum ertu með öll fjarskipti heimilisins á einum stað, færð einn reikning og enginn aukakostnaður bætist við vegna myndlykils, netbeinis (router) né aðgangsgjalds gagnaveitu. Ef greitt er með kreditkorti fellur niður 189 kr. útskriftargjald, svo við mælum eindregið með því að skrá kreditkort bak við reikninginn og þannig sleppa við það.

Það er einfalt að koma yfir til Vodafone

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.