Allt að sex gagnvirkir aukalyklar eru í boði um ljósleiðara. Á þá nást allar stöðvar sem greidd er áskrift að. Speglunarreglur gilda ekki um gagnvirka aukamyndlykla.
Einn aukalyklanna getur verið hefðbundinn loftnetsmyndlykill en um hann gilda speglunarreglur (sjá hér fyrir neðan). Á útsendingarsvæði UHF um loftnet er Stöðvafjöldinn er breytilegur frá 8 til 28 sjónvarpsstöðvum og allt að 9 útvarpsstöðvum eftir útsendingarsvæðum og gerð myndlykils.
Speglunarreglur fyrir aukalykla um loftnet:
Allar ólæstar stöðvar nást á aukalyklum um loftnet, einnig speglast stöðvapakkinn Vodafone erlendar S hjá þeim viðskiptavinum með þá áskrift. Viðskiptavinir með stöðvapakkana Vodafone erlendar M og L fá allar 9 stöðvarnar í Vodafone erlendar S speglaðar.
Speglunarreglur Stöðvar 2 fyrir aukalykla um loftnet
Greiða þarf sérstakt mánaðarlegt speglunargjald til Stöð 2 til að fá stöðvar fyrirtækisins á aukalykla. Sjá verðskrá Stöðvar 2. Athugið þó að dýrasti áskriftarpakkinn fæst aldrei á aukalyklinum.
Sem dæmi, ef þú ert með Stöð 2, báða sportpakkana og Fjölvarpspakka færðu allar stöðvar nema Stöð 2 á aukalykilinn. Ef þú ert bara með einn sportpakka og Fjölvarpspakka færðu hins vegar bara Fjölvarpspakkann á aukalykilinn og ef þú ert með Stöð 2 og einn sportpakka færðu bara sportpakkann á aukalykilinn.
Sumarbústaðalykill
Auk hefðbundinna aukalykla geta allir viðskiptavinir með Vodafone Sjónvarp fengið sérstakan sumarbústaðalykil ásamt sumarbústaðaáskrift. Sjá nánari upplýsingar hér.