Öryggi þitt er okkar metnaður. Hvort sem um er að ræða netöryggi, uppitíma eða að við séum til staðar 24/7 fyrir þig ef eitthvað kemur upp á.
Allar nettengingar Vodafone tryggja öfluga DDoS vörn sem gæti tryggt þitt fyrirtæki frá rekstrarstöðvun vegna DDoS árása. Tíðni DDoS árása hefur farið mjög vaxandi síðastliðin ár og því mikilvægt að huga að slíkum málum. Að auki getum við boðið ýmsar sérlausnir á þessu sviði.
Afritun og vírusvörn
Það er fátt verra fyrir reksturinn en að tapa gögnum og þar er ekki tryggt eftir á. Microsoft 365 tryggir öryggi gagna þinna með öflugri vírusvörn og öruggri afritun. Við eigum afrit fyrir þig komi til þess að gögn glatist.
Microsoft Defender vírusvörn ver gögnin þín í Outlook, Word, Excel, Powerpoint ásamt gagnageymslunum í One Drive og Sharepoint og fleiru.
Einnig er hægt að fá Office 365 leyfi hjá okkur.
4G/5G varaleið er einföld og ódýr lausn til að tryggja uppitíma enn frekar. Vodafone býður netbeini með innbyggðri 5G varaleið, þannig að ef fastlínutenging rofnar, þá fer sambandið sjálfkrafa yfir á 5G.
Innra net út um allt
Öll tæki á farsímanetinu haga sér eins og notandi sé á innra neti og fer öll netumferð fer í gegnum gátt fyrirtækisins. Mögulegt er að setja ýmsar reglur varðandi netumferð og kalla fram yfirlit.
Til dæmis:
Öryggi snjalltækja
Vodafone Secure Device Manager (VSDM) er fyrsta flokks lausn fyrir fyrirtæki sem vilja tryggja öryggi upplýsinga í snjallsímum og spjaldtölvum starfsfólks. Í samstarfi við Endor býður Vodafone upp á reglulegar veikleikaskimanir.
Meira um VDSM
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.