Vodafone

Þorláksmessutónleikar Bubba 2021

 

Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra.

Tónleikanir hefjast kl. 22:00 23. desember.

Tón­leik­arn­ir eru merki­leg­ir fyr­ir þær sak­ir að þetta verður í 36. sinn sem Bubbi stend­ur fyr­ir Þorláksmessutónleikum.

Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985 eða fyrir 36 árum. Þótt staðsetning tónleikana hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mæti með gítarinn og perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.

Leiðbeiningar um kaup

Hvernig kaupi ég tónleikana í gegnum myndlykil frá Vodafone?

1. Með því að ýta á rauða hnappinn með Vodafone merkinu á fjarstýringunni og fara þannig í valmynd á myndlykli. Þar ættu tónleikarnir að birtast undir Viðburðir ef flett er örlítið niður í valmynd.

2. Velja viðburðinn, samþykkja skilmála og staðfesta kaup.

3. Með því að staðfesta kaup virkjast tímabundin opnun á rás 901. Þú gætir þurft að endurræsa myndlykilinn þinn.

4. Viðburðinn verður aðgengilegur á rás 901 og mun sú rás opnast fljótlega eftir að kaup hafa verið kláruð.

5. Kaupin munu birtast á fjarskiptareikningi þínum um næstu mánaðamót.

Hvernig horfi ég á tónleikana í Stöð 2 appinu?

1. Það þarf að fara inn á vefsjónvarp Stöðvar 2 og skrá sig þar inn með sama aðgang og notaður er í appinu.

2. Tónleikarnir eru undir Viðburðir á forsíðunni í valmyndinni.

3. Tónleikarnir verða aðgengilegir á rásinni „Þorláksmessutónleikar Bubba“ í Stöð 2 appinu. Hún opnast á tónleikadeginum.

Spurt og Svarað

Get ég spólað til baka eða pásað útsendinguna í myndlykli Vodafone?
Já, hægt er að spóla til baka og pása á meðan útsendingu stendur.

Hvar get ég fengið tæknilega aðstoð sem varðar myndlykil Vodafone?

Þjónustuverið er opið frá kl. 09-20 á Þorláksmessu, eftir það tekur Vaka, nýja spjallmennið okkar við á netspjalli Vodafone, hún svarar öllum helstu spurningum um tónleikana.

Verða tónleikarnir aðgengilegir í tímavél í myndlykil Vodafone?
Já, þeir verða aðgengilegir í 48 klst eftir að tónleikum lýkur 23. desember í gegnum tímavél Vodafone í myndlykli. Eftir það verður ekki hægt að horfa á tónleikana.

Verða tónleikarnir aðgengilegir í tímavél í Stöð 2 appinu?
Nei, tónleikarnir verða ekki aðgengilegir í gegnum tímavél í Stöð 2 appinu.

Get ég notað Stöð 2 appið?
Já, hægt verður að horfa á tónleikana í gegnum appið með því að kaupa aðgang á sjonvarp.stod2.is. Rásin „Þorláksmessutónleikar Bubba“ mun opnast á tónleikadag í Stöð 2 appinu. Sjá nánari leiðbeiningar ofar í þessari frétt.

Get ég keypt aðgang í gegn um myndlykilinn minn?
Já, viðburðurinn ætti að birtast í viðmóti í myndlykli. Sjá nánari leiðbeiningar um kaup á viðburði með myndlykli ofar í þessari frétt.

Það er einfalt að koma yfir til Vodafone

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.