Vodafone

VerslunarmannaHelgi

VodafoneVodafone
16.07.2021

Laugardaginn 31. júlí verður VerslunarmannaHelgi í beinni frá Borginni. Streymið hefst kl. 21:00. Þú finnur tónleikana undir Viðburðir í myndlykli eða í vefsjónvarpi Stöðvar 2.

Nánari leiðbeiningar má finna hér neðar.

Ef einhverjar spurningar vakna á tónleikadegi getur þú haft samband við okkur á netspjallinu til kl. 20:00. Við kappkostum að svara öllum fyrirspurnum hratt og örugglega.

Góða skemmtun!

Leiðbeiningar:

Hvernig kaupi ég tónleikana í gegnum myndlykil frá Vodafone?

1. Með því að ýta á rauða hnappinn með Vodafone merkinu á fjarstýringunni og fara þannig í valmynd á myndlykli. Þar ættu tónleikarnir að birtast undir Viðburðir ef flett er örlítið niður í valmynd.
2. Velja viðburðinn, samþykkja skilmála og staðfesta kaup.
3. Með því að staðfesta kaup virkjast tímabundin opnun á rás 901. Þú gætir þurft að endurræsa myndlykilinn þinn.
4. Viðburðinn verður aðgengilegur á rás 901 og mun sú rás opnast fljótlega eftir að kaup hafa verið kláruð.
5. Kaupin munu birtast á fjarskiptareikningi þínum um næstu mánaðamót.

Hvernig horfi ég á tónleikana í Stöð 2 appinu?

1. Það þarf að fara inn á vefsjónvarp Stöðvar 2 og skrá sig þar inn með sama aðgang og notaður er í appinu.
2. Tónleikarnir eru undir Viðburðir á forsíðunni í valmyndinni.
3. Tónleikarnir verða aðgengilegir á rásinni „VerslunarmannaHelgi“ í Stöð 2 appinu. Hún opnast á tónleikadeginum.

Spurt og svarað

Get ég spólað til baka eða pásað útsendinguna í myndlykli Vodafone?
Já, hægt er að spóla til baka og pása á meðan útsendingu stendur.

Hvar get ég fengið tæknilega aðstoð sem varðar myndlykil Vodafone?
Þú getur haft samband við þjónustuver Vodafone hér.

Verða tónleikarnir aðgengilegir í tímavél í myndlykil Vodafone?
Já, þeir verða aðgengilegir í 48 klst eftir að tónleikum lýkur 31. júlí í gegnum tímavél Vodafone í myndlykli. Eftir það verður ekki hægt að horfa á tónleikana.

Verða tónleikarnir aðgengilegir í tímavél í Stöð 2 appinu?
Nei, tónleikarnir verða ekki aðgengilegir í gegnum tímaflakk í Stöð 2 appinu.

Get ég notað Stöð 2 appið?
Já, hægt verður að horfa á tónleikana í gegnum appið með því að kaupa miða á sjonvarp.stod2.is. Rásin „VerslunarmannaHelgi“ mun opnast 31. júlí í Stöð 2 appinu. Sjá nánari leiðbeiningar ofar í þessari frétt.

Get ég keypt miða í gegn um myndlykilinn minn?
Já, viðburðurinn ætti að birtast í viðmóti í myndlykli. Sjá nánari leiðbeiningar um kaup á viðburði með myndlykli ofar í þessari frétt.

 

Það er einfalt að koma yfir til Vodafone

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.