Vodafone

Eldgos í Geldingadölum

Sigurbjörn EiríkssonSigurbjörn Eiríksson
16.04.2021

Efld farsímaþjónusta á gosstöðvum

Eldgosið í Geldingadölum hefur vakið gífurlegan áhuga bæði hjá Íslendingum og á erlendri grundu. Þúsundir hafa heimsótt gosstöðvarnar og ekkert lát virðist vera á hraunflæði á svæðinu. Hlutverk Vodafone þegar kemur að náttúruhamförum, líkt og eldgosi er að tryggja örugg fjarskipti á svæðinu, þá fyrir viðbragðsaðila, vísindafólk og auðvitað viðskiptavini.

Strax í upphafi gos var farið í að efla farsímaþjónustu á svæðinu og var settur upp fjarskiptabúnaður á Langahrygg. Að því vann Vodafone í samstarfi við Neyðarlínuna, Almannavarnir og önnur fjarskiptafélög. Á síðustu vikum höfum við svo bætt við sendi sem þrefaldar afkastagetu á sjálfu gossvæðinu ásamt því að tvöfalda afkastagetu á öðrum sendum í nálægð við gosstöðvar t.d. við Krýsuvík og Grindavík. Með þessum aðgerðum höfum við náð að tryggja örugg fjarskipti á svæðinu fyrir alla þá sem leggja leið sína að gosstöðvunum.

Við minnum alla sem huga að göngu að gosstöðvunum að vera vel búin, fylgjast með upplýsingum um veður og nýta sér þær upplýsingar sem finna má hér:

Nýtt vefsvæði almannavarna: almannavarnir.is/eldgos

Góð ráð fyrir gönguferðina á: safetravel.is/gos-a-reykjanesi

Það er einfalt að koma yfir til Vodafone

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.