Voda góð netheilræði
Vodafone
Vodafone
10.02.2021
Það er gott að elska, árlegir Valentínusartónleikar Bubba Morthens, fara í ár fram heima í stofu hjá þér. Tónleikarnir verða í beinni úr Hlégarði, á sjálfan Valentínusardaginn, sunnudaginn 14. febrúar. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og verða um 90 mínútur að lengd og ætlar Bubbi að taka öll sín þekktustu og vinsælustu ástarlög frá ferlinum.
Við mælum með að kaupa tónleikana í gegnum myndlykil Vodafone eða í gegnum vefsjónvarp Stöðvar 2 ef horfa á í Stöð 2 appinu. Viðskiptavinir sem hafa nú þegar keypt miða á tix.is geta virkjað miðann sinn hér. Við mælum með því að virkja miða keypta hjá tix.is sem fyrst. Nánari leiðbeiningar má sjá hér fyrir neðan.
Ef einhverjar spurningar vakna á tónleikadegi getur þú haft samband við okkur á netspjallinu til kl. 20:00. Þér er einnig velkomið að heyra í okkur á hefðbundnum opnunartíma þjónustuvers milli kl. 9-17 virka daga og við aðstoðum þig við að virkja eða kaupa miða á tónleikana.
Góða skemmtun!
Hvernig kaupi ég tónleikana í gegnum myndlykil frá Vodafone?
1. Með því að ýta á rauða hnappinn með Vodafone merkinu og fara þannig í valmynd á myndlykli. Þar ættu tónleikarnir að birtast undir Viðburðir ef flett er örlítið niður í valmynd.
2. Velja viðburðinn og samþykkja skilmála og staðfesta kaup.
3. Með því að staðfesta kaup virkjast tímabundin opnun á rás 901. Þú gætir þurft að endurræsa myndlykilinn þinn.
4. Viðburðinn verður aðgengilegur á rás 901 og mun sú rás opnast um leið og kaup hafa verið kláruð.
5. Kaupin munu birtast á fjarskiptareikningi þínum um næstu mánaðarmót.
Hvernig virkja ég kóða frá Tix.is?
Eftir að hafa keypt miða á tix.is fyrir myndlykil Vodafone þarf að fylgja eftirfarandi skrefum:
1. Við mælum með því að virkja kaupin sem fyrst með því að smella hér. (Athugið: Fullt verð birtist í upphafsskrefinu en breytist þegar kóði er sleginn inn)
2. Smella á Áfram og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
3. Slá inn kóðann í reitinn Gjafakóði og smella á Virkja. Ef kóðinn er í lagi þá breytist verðið í 0 kr.
4. Smella á Staðfesta kaup og þá opnast á tónleikana á rás 901 í myndlyklinum þínum frá Vodafone. Þú gætir þurft að endurræsa myndlykilinn þinn.
5. Á rásinni er ekkert efni til að byrja með en tónleikarnir hefjast á rás 901 kl. 20:00 sunnudaginn 14. febrúar. Ef rásin fer ekki í gang eftir að þú hefur slegið inn kóðann, prufaðu að endurræsa myndlykilinn þinn.
Hvernig horfi ég á valentínusartónleika Bubba Morthens í Stöð 2 appinu?
1. Það þarf að fara inn á vefsjónvarp Stöðvar 2 og skrá sig þar inn með sama aðgang og notaður er í appinu.
2. Tónleikarnir eru undir Viðburðir á forsíðunni í valmyndinni.
3. Tónleikarnir ættu nú að vera opnir í Stöð 2 appinu á rásinni „Það er gott að elska“
Ég keypti miða hjá Tix.is fyrir myndlykil Vodafone. Get ég horft á tónleikana í snjallsímanum mínum eða spjaldtölvu?
Já, eftir að hafa virkjað miðann hér er hægt að horfa á tónleikana í snjallsímanum eða spjaldtölvu í gegnum Stöð 2 appið.
Ég virkjaði kóðann í einum myndlykli Vodafone en ég er búin að breyta um skoðun og núna vil ég horfa á tónleikana í öðrum myndlykli Vodafone, hvernig geri ég það?
Hægt er að færa viðburðinn á milli Vodafone myndlykla á Mínum síðum.
Get ég spólað til baka eða pásað útsendinguna í myndlykli Vodafone?
Já, hægt er að spóla til baka og pása á meðan útsendingu stendur.
Verða tónleikarnir aðgengilegir í tímavél í myndlykil Vodafone?
Já, þeir verða aðgengilegir í 48 klst eftir að tónleikum lýkur 14. febrúar í gegnum tímavél Vodafone í myndlykli. Eftir það verður ekki hægt að horfa á tónleikana, nema með því að kaupa þá aftur í gegnum leiguna í myndlyklinum.
Get ég notað Stöð 2 appið?
Já, hægt verður að horfa á tónleikana í gegnum appið með því að kaupa miða á sjonvarp.stod2.is. Rás 901 mun opnast 14. febrúar. Sjá nánari leiðbeiningar ofar í þessari frétt.
Get ég keypt miða í gegn um myndlykilinn minn?
Já, viðburðurinn ætti að birtast í viðmóti í myndlykli. Sjá nánari leiðbeiningar um kaup á miða með myndlykli ofar í þessari frétt.
Svör við öðrum algengum spurningum er að finna hér: senalive.is/bubbi-svor
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Vodafone
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.