Vodafone

Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens

VodafoneVodafone
22.12.2020

Bubbi ætlar að halda sína víðfrægu og margrómuðu Þorláksmessutónleika í beinni frá Bæjarbíói, heima í stofu hjá þér.

Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 þann 23. desember og búast má við því að Bubbi taki alla sína stærstu smelli frá einstökum 40 ára ferli. Hægt verður að kaupa tónleikana í gegnum myndlykil Vodafone eða í gegnum vefsjónarp Stöðvar 2 til þess að horfa á í Stöð 2 appinu. Viðskiptavinir sem hafa nú þegar keypt miða á tix.is geta virkjað miðann sinn hér. Nánari leiðbeiningar má sjá hér fyrir neðan.

Ef einhverjar spurningar vakna á tónleikadegi getur þú haft samband við okkur á netspjallinu til kl. 22:00. Þér er einnig velkomið að heyra í okkur á hefðbundnum opnunartíma þjónustuvers milli kl. 9-16 í dag og á morgun og við aðstoðum þig við að virkja eða kaupa miða á tónleikana.

Góða skemmun!

Hvernig kaupi ég tónleikana í gegnum myndlykil frá Vodafone?

1. Með því að fara í valmynd á myndlykli og að ýta á rauða hnappinn með Vodafone merkinu. Þar ættu tónleikarnir að birtast undir Viðburðir ef flett er örlítið niður í valmynd.
2. Velja viðburðinn og þar samþykkja skilmála og staðfesta kaup.
3. Með því að staðfesta kaup virkjast tímabundin opnun á rás 901. Þú gætir þurft að endurræsa myndlykilinn þinn.
4. Viðburðinn verður aðgengilegur á rás 901 og mun sú rás opnast kl. 22:00 miðvikudaginn 23. desember.
5. Kaupin munu birtast á fjarskipta reikningi þínum um næstu mánaðarmót.

Hvernig virkja ég kóða frá Tix.is?

Eftir að hafa keypt miða á tix.is fyrir myndlykil Vodafone þarf að fylgja eftirfarandi skrefum:

1. Við mælum með því að virkja kaupin sem fyrst með því að smella hér. (Athugið: Fullt verð birtist í upphafsskrefinu en breytist þegar kóði er sleginn inn)
2. Smella á Áfram og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
3. Slá inn kóðann í reitinn Gjafakóði og smella á Virkja. Ef kóðinn er í lagi þá breytist verðið í 0 kr.
4. Smella á Staðfesta kaup og þá opnast á tónleikana á rás 901 í myndlyklinum þínum frá Vodafone. Þú gætir þurft að endurræsa myndlykilinn þinn.
5. Á rásinni er ekkert efni til að byrja með en tónleikarnir hefjast á rás 901 kl. 22:00 miðvikudaginn 23. desember. Ef rásin fer ekki í gang eftir að þú hefur slegið inn kóðann. Prufaðu að endurræsa myndlykilinn þinn.

Hvernig horfi ég á Þorláksmessu tónleika Bubba í Stöð 2 appinu?

1. Það þarf að fara inn á vefsjónarp Stöðvar 2 og skrá sig þar inn með sama aðgang og notaður er í appinu.
2. Tónleikarnir eru undir Viðburðir á forsíðunni í valmyndinni.
3. Tónleikarnir ættu nú að vera opnir í Stöð 2 appinu á rásinni Þorláksmessutónleikar Bubba.

Spurt og svarað

Ég keypti miða hjá Tix.is fyrir myndlykil Vodafone. Get ég horft á tónleikana í snjallsímanum mínum eða spjaldtölvu?
Já, eftir að hafa virkjað miðann hér er hægt að horfa á tónleikana í snjallsímanum eða spjaldtölvu í gegnum Stöð 2 appið.

Ég virkjaði kóðann í einum myndlykli Vodafone en ég er búin að breyta um skoðun og núna vil ég horfa á tónleikana í öðrum myndlykli Vodafone, hvernig geri ég það?
Hægt er að færa viðburðinn á milli Vodafone myndlykla á Mínum síðum

Get ég spólað til baka eða pásað útsendinguna í myndlykli Vodafone?
Já, hægt er að spóla til baka og pása á meðan útsendingu stendur.

Verða tónleikarnir aðgengilegir í tímavél í myndlykil Vodafone?
Já, þeir verða aðgengilegir í 48 klst eftir að tónleikum lýkur 23. desember í gegnum tímavél Vodafone í myndlykli. Eftir það verður ekki hægt að horfa á tónleikana, nema með því að kaupa þá aftur í gegnum leiguna í myndlyklinum.

Get ég notað Stöð 2 appið?
Já, hægt verður að horfa á tónleikana í gegnum appið með því að kaupa miða á sjonvarp.stod2.is. Rás 901 mun opnast á Þorláksmessu. Sjá nánari leiðbeiningar ofar í þessari frétt.

Get ég keypt miða í gegn um myndlykilinn minn?
Já, viðburðurinn ætti að birtast í viðmóti í myndlykli. Sjá nánari leiðbeiningar um kaup á miða með myndlykli ofar í þessari frétt.

Það er einfalt að koma yfir til Vodafone

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.