Vodafone

Netöryggi í stafrænum heimi

Kristín Björk BjarnadóttirKristín Björk Bjarnadóttir
23.09.2020

Internetið er hafsjór af upplýsingum og afþreyingu sem við nýtum okkur í daglegu lífi, skóla og vinnu. Möguleikarnir á netinu eru óteljandi og hafa breytt mörgu í okkar lífi til hins betra en hafa einnig sínar skuggahliðar. Netsvindl í gjafaleikjum er eitt af því sem mikilvægt er að varast og í því samhengi minnum við á að Vodafone óskar aldrei eftir kreditkortaupplýsingum án aðkomu öruggra greiðslusíðna á borð við Valitor og Borgun. Það er þrautinni þyngri að sporna við svindlpóstum eða vefsíðum eins og þessum þar klókir svindlara eiga auðvelt með að setja upp tímabundnar falskar heimasíður og netföng. Við hjá Vodafone Íslandi erum hins vegar í stöðugu samstarfi við Vodafone Global að reyna uppræta þessa starfsemi.

Hér sjáið þið nokkra punkta sem geta bent til þess að um netsvindl sé að ræða og einnig afrit af einum svikapósti: 

  • Óskað er eftir kreditkortaupplýsingum í gjafaleik
  • Vodafone merkið er ekki nákvæmlega eins og á vodafone.is
  • Það eru stafsetningar- og málfarsvillur í textanum
  • Verðlaunin í leiknum er of góð til þess að vera sönn
  • Það er farið fram á að brugðist sé strax við tilboðinu sem þú fékkst sent
  • Vodafone gefur aldrei upp IP tölu í samskiptum sínum við viðskiptavini 

Upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi, ef þú telur að um netsvindl sé að ræða hvetjum við þig til að hafa samband við okkur í síma 1414 eða í netspjalli.  

Þitt netöryggi skiptir okkur máli.

Það er einfalt að koma yfir til Vodafone

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.