Vodafone

Breyttur opnunartími verslana

Kristín Björk BjarnadóttirKristín Björk Bjarnadóttir
24.03.2020

Við hjá Vodafone og Stöð 2 leggjum ríka áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina okkar. Heilsa og velferð starfsfólks okkar og viðskiptavina er okkur mjög hugleikin og höfum við því gripið til nauðsynlegra aðgerða til þess að uppfylla samkomubann líkt og önnur fyrirtæki. Við höfum ákveðið að loka verslunum okkar í Smáralind og Kringlu tímabundið. Verslanir okkar á Suðurlandsbraut og Glerártorgi verða áfram opnar en við munum taka mið af þeim leiðbeiningum sem almannavarnir hafa sett okkur. Við óskum þess sérstaklega að viðskiptavinir virði fjarlægðarmörk og það verklag sem við höfum ákveðið að temja okkur með það að leiðarljósi að gæta fyllsta öryggis allra. Sjá opnunartíma verslana hér.

Að því sögðu viljum við hvetja viðskiptavini til þess að nýta sér netspjall Vodafone eða netspjall Stöðvar 2, tölvupóst eða SMS í síma 1414 í stað þess að heimsækja verslanir Vodafone.

Við minnum á sjálfsafgreiðslu á Mínum síðum Vodafone og Stöð 2 ásamt gagnlegum upplýsingum á vodafone.is og stod2.is.

Það er einfalt að koma yfir til Vodafone

Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.