Þegar viðskiptavinur flytur þarf að tilkynna það til Vodafone með góðum fyrirvara svo flutningur á heimasíma, nettengingu og sjónvarpsþjónustu gangi sem best fyrir sig.
Það fer eftir verkefnastöðu hverju sinni hve langur biðtíminn er.
Viðskiptavinur þarf að hafa samband í 1414 til þess að tilkynna flutning til þess að gera flutningsbeiðni þarf að hafa: Fyrra símanúmer á nýja heimilisfangi (á aðeins við ADSL og VDSL), nýja heimilisfangið, póstnúmer, íbúðarnúmer og dagsetningu hvenær flutningur á að eiga sér stað.
Flutningsgjald má sjá í verðskrá heimasíma .
Við hvetjum viðskiptavini til að kynna sér möguleika á ljósleiðaratengingu þegar flutt er. Hægt er að fletta upp nýja heimilisfanginu hér á pöntunarsíðu internets til að sjá hvort ljósleiðari sé í boði.
Á þjónustusíðu Vodafone fyrir internet getur þú flett upp heimilisfanginu þínu og séð hvaða tegund tengingar er í boði fyrir þitt heimili. Við mælum með að taka hröðustu tenginguna sem í boði er.
Fyrsta skrefið er að leggja inn pöntun hjá Vodafone með góðum fyrirvara svo flutningur gangi sem best fyrir sig. Ferlið hefst þegar búnaður hefur verið sóttur/sendur og þegar það er búið að skrifa undir samning í verslun eða staðfesta flutninginn í gegnum SMS eða tölvupóst.
Þegar flutningi er lokið þá þarf viðskiptavinur að segja upp þeirri tengingu sem hann var með hjá fyrri þjónustuaðila ásamt því að skila inn búnaði (t.d. netbeini eða sjónvarpsmóttakara) til að koma í veg fyrir frekari rukkun.
Mjög mikilvægt er að segja ekki upp þjónustu fyrr en viðskiptavinur hefur verið tengdur hjá Vodafone til að sporna við netleysi á meðan flutningur á sér stað. Alltaf er mögulegt að þjónusturof eigi sér stað á meðan á flutningi stendur, þó það standi jafnan ekki lengi yfir.
Það er ávallt á ábyrgð viðskiptavinar að hafa samband við fyrri þjónustuaðila til að tryggja að uppsögn sé örugglega gengin í gegn.
Vinsælt er að nota síðuna speedtest.net.
Hraðinn er mældur með því að taka tímann á því hversu lengi tölvan er að sækja/senda ákveðið magn af gögnum og út frá því er upp- og niðurhalshraði ákvarðaður.
Gott er að miða við að taka próf á fleiri en einu tæki og að taka nokkur hraðapróf til þess að fá betri niðurstöðu.
Til fróðleiks um Hraðamælingar
Við notum Kb fyrir kilobit , KB fyrir kilobyte , Mb fyrir megabit og MB í megabyte í hraðaprófunum.
Þegar þú sérð B ritað með hástaf, þá þýðir það byte en með lágstaf þýðir það bit.
M (mega eða milljón) er einfaldlega 1000 sinnum stærra en K (kilo eða þúsundir) og 8b (bits) eru 1B (byte).
Hefð hefur skapast fyrir því að nota bits (lítið b) í hraðaupplýsingum en byte (stórt B) í skráarstærðum. Þessar tvær ritunaraðferðir þýða að samanburður er flóknari en hann þyrfti ella að vera.
Mæling uppá 8,40 Mb /s (með litlu b-i) er það sama og 1,05 MB /s (með stóru B-i) sem aftur er það sama og um 1050 KB/s eða 8400 Kb/s. Þetta þýðir að það þarf rúmlega 8 Mb/s hraða til að hala 1 MB skrá á einni sekúndu.
Til gamans þá er niðurhalshraði hjá flest öllum internetþjónustuaðilum auglýstur í Mb/s. Þegar verið er að hala niður efni á tölvum, þá sýna tölvurnar oftast hraðann í MB/s (eða KB/s) og veldur þessi munur stundum ruglingi hjá notendum.
Algengur hraði á ADSL tengingum er 10-11Mb/s (4-6Mb/s ef notandi er með ADSL sjónvarp). Á ljósleiðaratengingum er algengur hraði 40-45Mb/s óháð sjónvarpsþjónustu á þráðlausu merki.
Mikill munur er á þráðlausum og beintengdum tækjum, til að fá mestan mögulega hraða og sem minnstar truflanir er alltaf best að vera með tækin beintengd. Einnig senda nýjustu netbeinar út 2 merki og er hraða munur þar á. Routerinn sendir út á tíðninni 2,4 GHz og 5 GHz. 2,4 er langdrægara en gefur minni hraða. 5 GHz gefur meiri hraða en dregur illa, sérstaklega í gegnum veggi.
Einnig hafa aðstæður mikil áhrif á þráðlaust net, t.d. þykkir veggir (burðarveggir) geta orsakað truflanir. Önnur þráðlaus tæki sem eru nálægt netbeini eða á milli netbeinis og búnaðar geta einnig haft áhrif.
Ef þú ert ósátt/ur við þinn hraða, endilega hafðu samband við nethjálp í síma 1414 eða með Netspjalli .
Nei, ekkert stofngjald er á nettengingum og ekki er ákveðinn binditími við upphaf samnings.
Sjá nánari upplýsingar um uppsögn í skilmálum þjónustu Vodafone .Aftur á móti er greitt aðgangsgjald mánaðarlega, á verðskrársíðu internetþjónustu Vodafone má finna upplýsingar um aðgangsgjöld.
Gagnaveita Reykjavíkur: Gagnaveitan setur upp ljósleiðaraboxið og er enginn stofnkostnaður við það. Enginn stofnkostnaður er heldur við ljósleiðara af hálfu Vodafone.
Míla: Lagning Ljósleiðara Mílu er íbúum á höfuðborgarsvæðinu að kostnaðarlausu á meðan framkvæmdir standa yfir í hverfum og enginn stofnkostnaður fylgir því að fá Ljósleiðara Mílu.
Innifalið í nýrri ljósleiðaratenginu hjá Vodafone eru 30 mínútur með tæknimanni. Nánari upplýsingar um vinnureglur Vettvangsþjónustu Vodafone og hvað er innifalið í uppsetningu má nálgast hér .
Ljósleiðari:Ef ljósleiðarabox er til staðar í húsnæði þá er það hægt. Ef ekki er búið að setja upp ljósleiðarabox þá kemur tæknimaður frá Gagnaveitu Reykjavíkur og setur það upp og er sú þjónusta þér án endurgjalds. Að því loknu getur þú sótt þann búnað sem þarft í næstu verslun Vodafone eða fengið tæknimann frá Vettvangsþjónustu Vodafone heim.
Ljósnet og ADSL: Við mælum alltaf með því að fá tæknimann frá vettvangsþjónustu Vodafone heim til að tengja búnaðinn á Ljósneti eða ADSL.
Innifalið í nýrri ljósleiðaratenginu hjá Vodafone eru 30 mínútur með tæknimanni. Nánari upplýsingar um vinnureglur Vettvangsþjónustu Vodafone og hvað er innifalið í uppsetningu má nálgast hér .
Já, en þá þarf að setja beininn upp í samræmi við okkar kerfi.
Ljósleiðari:Ef þú ert með ljósleiðara er nóg að tengja routerinn við ljósleiðaraboxið (í port 1 eða 2) og fara í gegnum uppsetningu ljósleiðarabox sem má finna hér á síðu Gagnaveitu Reykjavíkur. (skraning.gagnaveita.is) eða hafa samband við okkur í 1414 eða netspjall og við skráum routerinn á ljósleiðaraboxið (Gagnaveita Reykjavíkur).
Ljósnet og ADSL:Ef þú ert með Ljósnet eða ADSL þarftu að fá notendanafn og lykilorð fyrir netbeininn. Þú getur fengið það uppgefið hjá þjónustuveri okkar í síma 1414. Til þess að nýta sér sjónvarpsþjónustu Vodafone í gegnum nettenginguna þarf einnig að sérstilla rásir á routernum, hér getur þú nálgast upplýsingar um hvernig það er gert.
Athugið að Vodafone þjónustar eingöngu netbeina á okkur vegum. Hér má nálgast lista yfir þá netbeini sem Vodafone þjónustar .
Ef þú ert með beini (router) á leigu frá Vodafone geturðu fengið nýjan búnað ef sá gamli bilar. Þá þarf að skila bilaða búnaðinum í verslun Vodafone og fá um leið afhentan nýjan búnað. Mælt er með því að hafa samband fyrst við nethjálp í 1414 til að staðfesta að búnaðurinn sé bilaður.
Sértu með eigin beini (router) geturðu fengið beini til leigu, en með því að hafa beininn á leigu tryggirðu að þú hafir alltaf aðgang að nýjasta búnaðinum hverju sinni og getir skipt út ef eitthvað bilar. Upplýsingar um leigugjald á netbeinum má finna hér á verðskrársíðu internetþjónustu Vodafone .
Nei, eingöngu er hægt að setja heimasíma í geymslu.
Ljósleiðari: Nei, ekki er í boði að vera með fasta IP tölu á Ljósleiðara.
Ljósnet og ADSL: Já, hægt er að vera með fasta IP tölu á Ljósneti og ADSL. Til þess að fá fasta IP tölu þarf viðskiptavinur að hafa samband við nethjálp Vodafone í síma 1414 og óska eftir því.
Til að nota það þá þarftu að senda beiðni á hjalp@vodafone.is þar sem fram kemur hvaða netfang á að vera tengt heimasvæðinu.
Slóðin á heimasvæðið verður á forminu xxxxx.internet.is, þar sem xxxxx er fyrri hluti netfangs þíns (verður að vera netfang @internet.is).
Þú færð þá fljótlega staðfestingu í tölvupósti á það netfang, með notandanafni og lykilorði.
Það kemur ýmislegt til greina, t.d vanstillt póstforrit, vírusvörn eða eldveggur sem gætu verið að loka á póstforritið.
Með því að smella hér geturðu séð helstu orsakir og lausnir.
Það geta margir hlutir komið til greina ef netið er hægvirkt. Með því að smella hér getur þú kynnt þér helstu orsakir og lausnir.
Þú getur einnig haft samband í 1414 eða með Netspjalli .
Það geta margir hlutir komið til greina þegar netið er að detta út.
Með því að smella hér geturðu séð yfirlit yfir helstu orsakir og lausnir.
Þú getur einnig haft samband við okkur í síma 1414 eða með Netspjalli .
Já, ef þú ert t.d með 100 GB innifalin í þjónustuleiðinni þinni þá muntu fá tölvupóst þegar þú ert búinn með 80% af inniföldu gagnamagni, að því gefnu að þú sért með skráð netfang hjá okkur. Þú getur látið okkur skrá það með því að hafa samband í gegnum hjalp@vodafone.is, í síma 1414 eða með Netspjalli Vodafone.
Þó svo dæmið hér að ofan tali um 100 GB þá á þetta við um allar þjónustuleiðir.
Þegar gagnamagnið klárast lokast samt sem áður ekki fyrir hægt sé að nota netið, þess í stað bætist sjálfkrafa við aukagagnamagn (hægt er að afþakka aukagagnamagn á Mínum síðum) .
Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir að hægist á tengingum notanda, þeim til ama. Sjálfvirka áfyllingin á sér stað þrisvar, en klári notandi gagnamagnið sitt í fjórða skipti, verður rétthafi að hafa samband við þjónustuver Vodafone, 1414, ef hann óskar eftir því að fá meira gagnamagn.
Ef þú óskar ekki eftir því að viðbótargagnamagni sé bætt sjálfvirkt við tenginguna getur þú stillt það á Mínum síðum.
Allar internetleiðirnar okkar telja allt gagnamagn. Sem þýðir að allt upp- og niðurhal á bæði innlendri og erlendri umferð er talið.
Já. Hægt er að afþakka að aukagagnamagni sé bætt við sjálfvirkt á Mínum síðum. Ef það hefur verið gert og innifalið gagnamagn klárast hægist á nettengingunni.
Þá er hægt að panta aukagagnamagnspakka með því að hafa samband við þjónustuver Vodafone í síma 1414. Þá gildir hefðbundin verðskrá Vodafone og er þá ekki tekið tillit til þess á hvaða áskriftarleið viðskiptavinur er.
Hægt er að sjá hvar gagnvirkt sjónvarp Vodafone yfir nettengingu býðst með því að fletta upp heimilisfanginu þínu hér .
Samsung UHD/4K háskerpumyndlykillinn er tengdur með HDMI snúru.
Amino 140 háskerpumyndlykilinn er iðulega tengdur með HDMI snúru, en það er eina leiðin til að njóta sjónvarps í háskerpu. Einnig er hægt að tengja af mini-DIN útgangi myndlykils í SCART tengi sjónvarpstækis, S-Video eða RCA (composite merki). Fyrir SCART tengið er hægt að velja RGB, S-Video eða composite merki.
Einnig er hægt að tengja myndlykilinn við sjónvarp með loftnetsmerki (RF-signal) en hafa skal í huga að slík tenging gefur lökustu myndina, en getur hentað vel til að tengja myndlykil t.d. inn á loftnetskerfi innanhúss.
Ljósleiðari:
Já, á Ljósleiðara er hægt að vera með allt að sjö myndlykla og er opið á sömu stöðvarnar á þeim öllum, ólíkt hefðbundnum loftnetsmyndlyklum. Ef þú vilt tengja fleiri en tvo myndlykla á ljósleiðara þá þarftu netskipti (switch) til að tengja þá alla við ljósleiðaraboxið (Gagnaveita Reykjavíkur) eða routerinn (GPON Mílu).Ljósnet:
Já, á Ljósneti er hægt að vera með allt að fimm myndlykla og er opið á sömu stöðvarnar á þeim öllum, ólíkt hefðbundnum loftnetsmyndlyklum. Ef þú vilt tengja þrjá eða fleiri myndlykla á Ljósnet, þá þarftu netskipti (switch) til að tengja þá alla við routerinn).ADSL:
Nei, Það er ekki hægt að vera með aukamyndlykil í gegnum ADSL.Öllum viðskiptavinum Vodafone sem eru með gagnvirka sjónvarpsþjónustu yfir internet stendur til boða að fá einn loftnetsmyndlykil án endurgjalds með IPTV lyklinum sínum.
Ljósleiðari:
Beinirinn er tengdur beint í ljósleiðaraboxið og hægt er að tengjast beininum gegnum þráðlaust net eða með kapli.
Myndlykill tengist einnig beint í ljósleiðaraboxið eða gegnum powerline búnað sem leiðir merkið gegnum rafmagn. Ef þú ert með þrjá myndlykla þarf netskipti til að dreifa merkinu frá ljósleiðaraboxinu.
Ljósnet og ADSL:
Myndlykillinn þarf að tengja með netsnúru (Cat5) í tengi 4 á beininum, merkt LAN 4 á Huawei beininum.
Leigan fylgir gagnvirku sjónvarpi Vodafone yfir nettengingu.
Með henni færð þú aðgang að þúsundum kvikmynda og sjónvarpsþátta sem þú getur pantað þegar þér hentar. Nýjum kvikmyndum er bætt við reglulega, bæði glænýjum kvikmyndum sem koma sjóðheitar út kvikmyndahúsunum og einnig eldri gæðamyndir. Mikill fjöldi titla fæst í háskerpu með fyrsta flokks 5.1 heimabíóhljómgæðum.
Háskerpumyndir eru í boði í Leigunni fyrir notendur með Samsung UHD/4K og Amino 140 myndlykilinn, en eingöngu á ljósleiðara.
Kynntu þér Leiguna í Vodafone Sjónvarpi. Stöðvar í opinni dagskrá eru: RÚV, RÚV+, Sjónvarp Símans, Hringbraut, N4, CCTV News, Sport TV, Sport TV 2 og Alþingi. Auk þess er RÚV HD opin þeim sem geta tekið á móti háskerpuútsendingum.
Nei. Allir myndlyklar sem taka við mynd gegnum ADSL eða ljósleiðara eru fastir við heimilisfang.
Frekari upplýsingar má nálgast í síma 1414 eða á netspjallinu.
Eftirfarandi útvarpsrásir fylgja sjónvarpsþjónustu Vodafone:
121 Bylgjan
122 FM957
124 Rondo
125 LéttBylgjan
126 Latibær
127 BBC World Service
128 X-ið
130 Gullbylgjan
131 Rás 1
132 Rás 2
133 K100,5
Auk þess hefur Vodafone boðið upp á tímabundnar útvarpsstöðvar, t.d. um jólin, en þá er það auglýst sérstaklega.
Já, það er hægt að læsa leigunni með því að velja "Allt læst" í stillingum, þá er öllu efni á Leigunni læst og sérstakt Pin-númer þarf til að leigja efni hverju sinni.
Pin-númerið geturðu stillt í stillingum myndlykilsins. Ef þú lendir í vandræðum geturðu svo alltaf haft samband í 1414 eða á netspjallinu.
Við bendum sérstaklega á að ef fleiri en einn myndlykill er á heimilinu þá er læsing stillt á hvern myndlykil fyrir sig (inni í stillingum á honum). Læsing sem stillt er á einum myndlykli tekur ekki sjálfkrafa gildi í öðrum myndlyklum heimilisins.
Þú nærð HD-útsendingu með gagnvirkum háskerpumyndlykli frá Vodafone (Samsung UHD/4K og Amino 140) í gegnum netið og einnig með háskerpu-loftnetsmyndlykli (UHF).
Til að ná stöðvunum þarf annaðhvort háskerpumyndlykil eða sjónvarp með HD móttakara (TVB-T2).Ef sjónvarpið þitt er ekki með HD móttakara getur þú komið í næstu verslun og fengið Intek myndlykil. Fyrir sjónvarp með HD móttaka þarf auk þess að fá CAM-kort frá Vodafone til að opna læstar stöðvar.
Gagnvirkt sjónvarp um ADSL geturðu nálgast sjónvarpsstöðvar sem senda út í HD en ADSL tengingin styður ekki kvikmyndir í HD í Leigunni.
Við mælum með notkun á WPA dulkóðun á þráðlausum netum. Til að geta notað WPA þarf tölvan og beinirinn að styðja WPA dulkóðun. Sé stuðningur ekki til staðar þarf að notast við eldri dulkóðun sem nefnist WEP.
Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar til að stilla á WPA dulkóðun fyrir algengustu beinunum frá okkur.
Vodafone Huawei
Byrjaðu að fara inn á router með því að opna vafra og fara inn á slóðina http://192.168.1.1 (nota skal notendanafnið og lykilorðið sem er aftan á router) efst uppi í rauða borðanum skal smella á Home Network þá kemur upp síða til stilla þráðlausa netið, vinstra meginn á síðunni velur þú WLAN Settings því næst er valið WLAN Encryption og Encryption þar velur þú WPA2-PSK eða WPA-PSK+WPA2-PSK í Security Mode. Til þess að vista þarf að velja Save.
Sjá ítarlegri útgáfa af leiðbeiningum fyrir Vodafone Huawei .
Vodafone Zhone
Sjá ítarlegri útgáfa af leiðbeiningum fyrir Vodafone Zhone .
Til að fá notendaupplýsingar, þ.e. notendanafn og lykilorð hefur þú samband við nethjálp Vodafone í síma 1414.
Kjörstillingar eru,
Encapsulation: PPPoE
Multiplexing: LLC
VPI: 0
VCI: 33
Ef þú ert utan heimasvæðis Vodafone þá breytirðu:
VPI: 8
VCI: 48
Einnig þarft þú að láta notendanafnið enda á @internet.is.
Hægt er að nálgast leiðbeiningar um uppsetningu beina á þessari síðu.
Ef þinn beinir er ekki þar geturðu nálgast leiðbeiningar um aðra beina hér .
Í sumum tilvikum geta 4G spjaldtölvur tengst beint við kerfið. Vodafone sendir til að byrja með út á 800 MHz tíðni á 4G sendum á Suður- og Vesturlandi. Þessi tíðni er langdræg og því er 4G kerfið mjög víðfeðmt. Þetta hefur þó í för með sér að ekki getur allur búnaður tengst, þótt hann sé gefinn út fyrir að styðja 4G.
Sem dæmi er ekki hægt að tengjast 4G með iPad eða iPhone vegna þess að þessi tæki geta ekki notað 800 mhz á meðan t.d. Samsung Galaxy Note 8 spjaldtölva getur það.
Vodafone mun hins vegar þegar fram líða stundir bæta við sendum á 1800mhz tíðni, sem iPad-spjaldtölvur styðja.
Það er hins vegar einfalt að nettengja allar spjaldtölvur - þar á meðal iPad - í gegnum 4G ferðanetbeini eða 4G netbeini. Kynntu þér 4G búnað Vodafone .
Þegar viðskiptavinir fá nýjan 4G netbúnað og áskrift að gagnamagni fæst EKKI fullt gagnamagn fyrir fyrsta mánuðinn, nema búnaðurinn sé keyptur 1. dag mánaðarins. Gagnamagnið fyrir fyrsta mánuðinn er í hlutfalli við það hversu mikið er eftir af mánuðinum þegar áskriftin hefst.
T.d. ef áskrift hefst 20. dag 30 daga mánaðar færð þú 1/3 gagnamagnsins (af því að 1/3 er eftir af mánuðinum) af þinni áskrift fyrir þann mánuð. Að sjálfsögðu er upphæð fyrsta reiknings áskriftarinnar einnig í hlutfalli við það hversu mikið var eftir af mánuðinum þegar áskrift hófst. Í þessu dæmi myndi fyrsti reikningurinn vera 1/3 af hefðbundinni mánaðaráskrift.
Við hvetjum viðskiptavini til að hafa þetta í huga við upphaf áskriftar - sérstaklega ef áskrift hefst seint í mánuðinum.
Munurinn liggur í internetþjónustunni og gagnamagnshraðanum sem er mun meiri í 4G en í 3G.
4G sendar Vodafone bjóða upp á allt að 50mbps en 3G um 8.4mbps í niðurhal.
Hægt er að sjá verðskrána með því að smella hér .
Já. Búnaður sem hefur verið í boði og seldur með 3G styður ekki 4G. Hins vegar er hægt að vera með 4G búnað og nota hann á 3G.
Já. Búnaðurinn sem Vodafone er með í sölu sem 4G búnaður býður upp á að nýta bæði kerfin og tengjast 3G ef 4G samband er lélegt eða ekki fyrir hendi. Ef 4G er ekki í boði þar sem þú ert tengist búnaðurinn internetinu sjálfkrafa í gegnum 3G senda Vodafone.
Í sumum tilvikum á jaðarsvæðum 4G-þjónustusvæðisins getur þó verið betra að festa 4G búnaðinn á 4G. Það er vegna þess að oft er hægt að ná meiri hraða á slökum 4G sendistyrk á heldur en góðum 3G sendistyrk.
Já, á Mínum síðum getur þú fylgst með stöðunni á 4G netáskrift og netfrelsi.
Fyrst um sinn þarf að koma í verslun Vodafone, stofna 4G Netáskrift og fá með því nýtt SIM kort. Kaupa þarf 4G endabúnað (netlykil, ferðanetbeini eða netbeini) til að tengjast 4G sé slíkur búnaður ekki til staðar. Í framhaldi er 3G Netáskriftinni sagt upp.
4G Netáskrift gerir þér kleift að komast í þráðlaust netsamband með netbúnaði fyrir tölvur þar sem 4G, 3G eða GPRS er að finna.
Þú getur kynnt þér 4G Netáskrift með því að smella hér.
Þegar farið er til útlanda er einungis hægt að nota 3G/4G netbúnað.
Einnig er hægt að fá 4G Netfrelsi. Það eru sömu pakkar og boði er í 4G Netáskrift en þar er notkun er greidd fyrirfram.
Já, öll notkun er mæld. Gagnamagnsnotkun á 4G, 3G og GSM telst vera bæði upp- og niðurhal og jafnframt er talin bæði innlend og erlend gagnaumferð.
Netfrelsi gerir þér kleift að komast í þráðlaust netsamband með netbúnaði þar sem 4G, 3G eða GPRS er að finna.
Netfrelsi virkar þannig að þú kaupir þér gagnamagnspakka og þegar allt gagnamagnið hefur verið nýtt þá lokast fyrir niðurhalið og því myndast engir bakreikningar.
Kynntu þér 4G netfrelsi með því að smella hér.
Gagnamagnið gildir í 30 daga og hægt er að kaupa það á Mínum síðum , á öruggum vef Vodafone , í verslunum og símleiðis í 1414.
Einnig er hægt að kaupa gagnamagn í áskrift.
Með 4G er hægt að ná allt að 50 Mb/s
Með 3G er hægt að ná allt að 8.4 Mb/s
Með EDGE er hægt að ná allt að 230 kb/s
Með GPRS er hægt að ná allt að 43 kb/s
Hægt er að sjá þjónustusvæði okkar hér .
Hér má sjá nákvæmt kort yfir þjónustusvæði 4G, 3G og GSM kerfis Vodafone .
Þar sem einungis GSM-samband er (ekki 4G eða 3G) er tengst gegnum EDGE / GPRS sem er talsvert hægara en hinir möguleikarnir en virka engu að síður vel fyrir mobile síður.
Til að geta notað USB Nettengilinn þarft þú að vera með að minnsta kosti Windows XP, Windows Vista eða Mac OS X 10.3.9.
Einnig þarf að vera a.m.k. 50 MB laust diskapláss og 256 MB í vinnsluminni. Tölvan þarf svo auðvitað að vera með USB 2.0 innstungu.
Í forritinu sem fylgir með nettenglinum og notað er til þess að tengjast netinu má fylgjast með notkuninni og einnig má stilla ákveðið hámark, t.d. í takt við hversu stóran gagnamagnspakka þú ert með. Það er gert með því að fara í Vodafone Mobile Broadband forritið og smella á Advanced.
Svo er eftirfarandi skrefum fylgt:
1. Smelltu á Usage flipann.
2. Smelltu á Previous Usage: Mobile reitinn þannig að hann verði grár.
3. Breyttu í það gagnamagn sem þú vilt hafa sem hámark (Limit).
4. Hér geturðu valið MB eða GB.
Undir Warnings er hægt að velja hvenær forritið lætur vita þegar gagnamagnið (sem var valið í þrepi 2) er búið.
Já,
Vodafone Box (VOX) beinirinn er með rauf fyrir 3G nettengil, þannig er hægt að láta beininn deila netsambandinu yfir á nokkrar vélar. Þessir nettenglar virka með VOX beininum: Huawei: E220, E270, E272, E172, K3715, K3760, K352. ZTE: K3765.
Einnig er hægt að fá Vodafone MiFi búnað og Vodafone netbeini til að tengja saman allt að fimm tölvur með einum 3G netbúnaði. Tölvurnar tengjast græjunni með þráðlausu neti og er með rafhlöðu fyrir þá sem eru á ferðinni. Meira um MiFi og netbeininn hér .
Já. En ef þú notar nettengilinn þinn í tveimur eða fleiri tölvum og vilt fylgjast með niðurhali þarftu að leggja saman gagnamagnið sem hugbúnaður í hvorri tölvu segir til um að þú hafir notað til að glöggva þig á heildarnotkuninni á hverju tímabili.
Dæmi : Ef þú hleður niður 2 GB í annarri tölvunni og 1 GB í hinni (alls 3 GB), þá áttu 2 GB eftir af 5 GB inniföldu gagnamagni. Þú getur líka fylgst með gagnanotkun þinni á mínum síðum .
Uppsetningarferlið byrjar sjálfkrafa eftir að þú hefur stungið nettenglinum í samband við tölvuna. Þú kemst fyrirvaralaust í samband við farnet Vodafone víðs vegar um landið. Hér má líka finna leiðbeiningarbækling á ensku.
USB nettengillinn er framleiddur af HUAWEI fyrir Vodafone og hefur númerið K3806
Nettengill gerir þér kleift að vera í þráðlausu netsambandi með fartölvunni þinni alls staðar þar sem 3G og EDGE nýtur við, jafnt innanlands sem utan.
Þú getur skoðað og sent tölvupóst, SMS, vafrað á internetinu og tengst vinnuumhverfi þínu (VPN).
Nettengillinn styður jafnt HSDPA, UMTS, EDGE og GPRS. Hraðinn sem þú nærð fer eftir því í hvers konar sambandi þú ert og hversu gott sambandið er hverju sinni. Nánari upplýsingar má finna hér .
Ef nettengillinn þinn frá Vodafone virkar ekki eftir að stýrikerfi hefur verið uppfært þarf að nálgast nýjustu uppfærslu hugbúnaðar. Hugbúnaðinn má nálgast hér og eftir uppsetningu ætti nettenging að verða virk á ný. Athugið að keyra þarf „setup_vmb.exe“ skrána eftir að niðurhali er lokið til þess að ljúka uppsetningu á nýja hugbúnaðinum.
1. Fjarlægðu USB nettengilinn úr tölvunni
2. Endurræstu vélina
3. Tengdu USB nettengilinn aftur
Það er þekkt vandamál með að ná VPN-sambandi á Vodafone K3806 nettenglinum á Windows 7 stýrikerfinu í 64 bita útgáfu. Það lýsir sér þannig að engin netumferð getur átt sér stað eftir að VPN samband er komið á. Til er einföld leið til að laga það.
Hér má finna leiðbeiningar á PDF .
1. Breyttu um staðsetningu innanhúss, farðu nær glugga, farðu hærra upp eða farðu út. Einnig er alltaf gott að prófa að endurræsa allan búnað.
Til að leita að þráðlausum netum:
2. Veldu View og View Available Mobile Connections og athugaðu hvort að þú náir að tengjast handvirkt
2b. Veldu Tools og Select Network.
2c. ( Macintosh ) Connections, smella á plúsinn og Select Networks
1. Endurræstu tölvu
2. Hægrismelltu á My Computer og smelltu á Properties, veldu því næst Hardware og opnaðu Device Manager.
3. Stækkaðu „Universal Serial Bus Controllers“
4. Hægrismelltu á „USB Mass Storage Device“ og veldu Uninstall.
5. Smelltu á „Action“ og „Scan for Hardware changes“
6. Endurræstu tölvu
1. Bíddu í nokkrar mínútur og reyndu að tengjast aftur, þetta er mjög oft tímabundið vandamál, sérstaklega ef þú ert að fá „Error 631“ eða „Error 619“.
2. Farðu í File og Exit, ræstu svo forritið og reyndu aftur.
3. Endurræstu tölvuna
4. ( Windows ) Smelltu á „Manage Devices“ veldu búnaðinn og smelltu á edit og prufaðu að velja annað en „3G Only“ t.d GPRS/EDGE Preferred.
4b.( Mac ) Í aðalglugganum prufaðu að velja annað en „3G Only“ t.d GPRS/EDGE Preferred.
Ef þú ert með 15GB þjónustuleið þá geturðu látið forritið vara þig við þegar þú nálgast þá takmörkun. Einnig er mögulegt að forritið sé stillt á 5GB þótt þú sért með stærri þjónustuleið og forritið hindri þig þannig í að nýta alla inneignina.
Smelltu hér til að fá leiðbeiningar til að breyta þessu.
Blikkandi grænt ljós = Lykillinn er að keyra sig inn / Lykillinn er að reyna að tengjast á 2G.
Blikkandi blátt ljós = Lykillinn að reyna að tengjast.
Stöðugt blátt ljós = Lykillinn er tengdur á 3G.
Stöðugt grænt ljós = Lykillinn er tengdur á 2G.
Ekkert ljós = Lykillinn er ekki í sambandi eða ekki að reyna að tengjast.
Hægt er að sjá leiðbeiningar með því að smella hér
Netfrelsi getur þú keypt í næstu Vodafone verslun eða með einu símtali í 1414.
Einnig eru nokkrar leiðir til að gera það sjálf/ur.
Þú getur fyllt á með kreditkorti hér. Þú getur einnig skráð þig inn á Mínar síður og fyllt á af kreditkorti eða virkjað sjálfvirka áfyllingu af debet- eða kreditkorti.
Til að kaupa gegnum sjálfvirka áfyllingu er eftirfarandi gert:
*126*1990*PIN*Númer netfrelsis# Hringja - Þetta eru 5GB.
*126*3990*PIN*Númer netfrelsis# Hringja - Þetta eru 15GB.
Vodafone leigir út Huawei HG659 netbeina til viðskiptavina. Á Huawei netbeinunum er hægt að velja milli tveggja Wi-Fi tenginga, annars vegar á 2.4GHz tíðni og hins vegar á 5GHz tíðni.
Helsti munurinn á þessum stöðlum er hraði og drægni. 5GHz Wi-Fi sendir út mun hraðara merki. Þar að auki er 5GHz talsvert stöðugri staðall en á móti kemur að bylgjulengdirnar sem hann notar eru mun styttri og þar af leiðandi er drægnin töluvert dræmari heldur en á 2.4GHz staðlinum. Þetta orsakar að þráðlaust net á 5GHz nær illa í gegnum steypta veggi og milli hæða.
Hér að ofan má sjá muninn á bylgjulengdum 2.4GHz og 5GHz. Bylgjurnar á 2.4GHz staðlinum eru breiðari og lengri. Þær berast þ.a.l. margfalt betur gegnum þétta veggi og yfir stærra svæði.
Á heimili sem notast við 1000 Mbps ljósleiðara þá er eðlilegur hraði á Wi-Fi sem sendir á 2.4GHz á bilinu 50 – 100 Mbps. Eðlilegur hraði á Wi-Fi sem sendir á 5GHz er á bilinu 100 – 250 Mbps. Þetta er hins vegar breytilegt eftir netbeinum. Þráðlaus nethraði er mjög breytilegur og Wi-Fi hraði nettengdra tækja fer mikið eftir fjarlægð frá netbeini og fjölda tækja tengdum þráðlausa netinu. Ýmis tæki, líkt og örbylgjuofnar og snjallsjónvörp, sem notast við Bluetooth (á bara við um 2.4GHz) geta sömuleiðis skert hraða annarra nettengdra tækja.
Margir kjósa að tengja öll tæki heimilisins við 5GHz staðalinn til þess að hámarka nethraða tækjanna. Í mörgum tilvikum er það allt í lagi en í stærri húsum og nýbyggðum steyptum íbúðum gætu notendur fundið fyrir truflunum og slitróttu sambandi víðsvegar um heimilið. Í þeim tilvikum mælum við almennt með að nota 2.4GHz Wi-Fi.
Wi-Fi á 5GHz virkar best þegar tæki eru í sama rými og netbeinirinn. Að auki skiptir gríðarlega miklu máli hvar netbeinirinn er staðsettur innanhúss til að hámarka drægni og hraða Wi-Fi á heimilinu.
Hér að ofan má sjá staðsetningu netbeinis innanhúss. Hann er staðsettur úti í horni og er með beina sjónlínu inn í öll herbergi en merki þráðlausa netsins endurspeglast af veggjum fram og til baka þangað til það nær loksins inn í innstu herbergin. Það skerðir samband og lækkar hraða. Best er að hafa netbeini staðsettan eins miðsvæðis og hægt er og í opnu rými.
Eftirfarandi eru lykilupplýsingar um DNS, póstþjóna og DSL
DNS þjónar Vodafone
Primary: ns2.internet.is - 193.4.194.5
Secondary: ns3.internet.is - 194.144.200.65
eða
Primary: ns1.internet.is - 213.176.128.51
Secondary: ns4.internet.is - 194.144.200.66
Póstþjónar Vodafone
Incoming mail: mail.internet.is
Outgoing mail: mail.internet.is (M.v. að nettengingin sé frá Vodafone. Annars er notaður þjónn viðkomandi fyrirtækis.)
Incoming port (POP3): 110
Outgoing port (SMTP): 25
Incoming port (IMAP): 143
PPP stillingar fyrir xDSL tengingar Vodafone
0/33 pppoe llc encapsulation
PPP stillingar fyrir xDSL tengingar Vodafone á kerfi Símans
8/48 pppoe llc encapsulation, notandanafn@internet.is
Já, en þá þarf að setja beininn upp í samræmi við okkar kerfi og fá hjá okkur notendanafn og lykilorð fyrir beininn. Þú getur fengið þetta uppgefið hjá okkur en ekki er hægt að veita aðstoð við notkun annarra beina en okkar eigin í þjónustuveri Vodafone í síma 1414.
Ef þig vantar notendanafn og lykilorð fyrir þína tengingu hafðu samband við nethjálp í 1414.
Ef þú ert með beini (router) á leigu frá Vodafone geturðu fengið nýjan búnað ef sá gamli bilar. Þá þarf að skila bilaða búnaðinum í verslun Vodafone og fá um leið afhentan nýjan búnað. Mælt er með því að hafa samband fyrst við nethjálp í 1414 til að staðfesta að búnaðurinn sé bilaður.
Sértu með eigin beini (router) geturðu fengið beini til leigu, en með því að hafa beininn á leigu tryggirðu að þú hafir alltaf aðgang að nýjasta búnaðinum hverju sinni og getir skipt út ef eitthvað bilar. Verðskrána er að finna HÉR .
Leiðbeiningar um stillingar á hinum ýmsu beinum má finna hér
Hafa samband
Aðstoð
Hafa samband
Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.